Posted on

Fallstjórn sagnarinnar bíða

Í morgun rak ég augun í fyrirsögnina „Evrópumeistararnir bíða Íslandi“ á vef Ríkisútvarpsins. Nú tekur sögnin bíða venjulega ekki með sér þágufallsandlag heldur annaðhvort eignarfallsandlag, bíða Íslands, eða forsetningarlið með þágufalli, bíða eftir Íslandi. Ég hélt því fyrst að þarna væri einfaldlega um að ræða hroðvirkni eða fljótfærnisvillu þar sem forsetningin eftir hefði fallið niður og þágufallið því lent beint á eftir sögninni – og reyndar hefur fyrirsögninni nú verið breytt í „Evrópumeistarararnir bíða Íslands.“ En við nánari athugun kom í ljós að setningar hliðstæðar upphaflegri fyrirsögn eru ekki einsdæmi – ég fann hundruð dæma um bíða með þágufalli, mun fleiri en svo að hægt sé að afgreiða þau öll sem fljótfærnisvillur.

Elstu dæmi sem ég finn um þágufallsandlag eru síðan upp úr aldamótum. Á Hugi.is 2003 segir: „þeim beið ekkert nema dauðin.“ Á Bland.is 2004 segir: „þegar hann kom heim eftir mánaðar ferð beið honum önnur milla.“ Á fótbolti.net 2004 segir: „Þegar að Flores mætti til vinnu í morgun þá beið honum uppsagnarbréfið.“ Á Hugi.is 2005 segir: „hann var að verða forvitinn hvað beið honum lengra niður ganginn.“ Í Vísi.is 2008 segir: „Á morgun bíða henni erfiðir andstæðingar.“ Í DV 2010 segir: „Stöðumælaverðir vinna nú að því að skrifa sektarmiða sem bíða þeim Þjóðfundargestum sem lögðu ólöglega í morgun.“ Á Eyjunni 2010 segir: „Hartnær fimm hundruð mál bíða þeim aðila er tekur við nýju starfi umboðsmanns skuldara.“

Dæmin um þágufallsandlag í Risamálheildinni skipta hundruðum, og mér fannst athyglisvert að dæmin voru ekki síður úr fjölmiðum en af samfélagsmiðlum. Það er meira að segja hægt að finna dæmi alveg hliðstæð áðurnefndri fyrirsögn, sem bendir ótvírætt til þess að hún sýni málbreytingu í uppsiglingu frekar en hroðvirkni. Í Vísi 2011 segir: „Sterk lið bíða Íslandi í 16-liða úrslitunum.“ Á mbl.is 2021 segir: „því bíða Íslandi erfiðir leikir.“ Í Vísi 2019 segir: „Verkefnið sem beið Blikum var ekki af minni gráðunni.“ Á mbl.is 2018 segir: „FH-ingar bíða KR-ingum í næstu umferð.“ Á fótbolti.net 2019 segir: „það beið Skotum því ansi stórt verkefni fyrir síðari hálfleikinn.“ Í Vísi 2018 segir: „Það beið Selfyssingum erfitt verkefni í kvöld.“

Sagnir sem taka eignarfallsandlag eru sárafáar – þær helstu eru sakna, gæta, spyrja, óska og bíða. Þrjár þær síðarnefndu geta tekið forsetningarlið í stað andlags – spyrja um, óska eftir og bíða eftir. Vegna lágrar tíðni eignarfallsandlaga má búast við því að þau sýni tilhneigingu til að breytast. Fallstjórn sagna er ekki meitluð í stein og fjölmörg dæmi þess á öllum tímum að hún hafi breyst án þess að það skaði málið nokkurn skapaðan hlut. Ég hef þess vegna yfirleitt ekki talið ástæðu til að amast við slíkum breytingum, hvað þá að berjast gegn þeim. En í þessu tilviki gegnir aðeins öðru máli, einmitt vegna þess að eignarfallið á undir högg að sækja. Fækkun sagna sem taka eignarfallsandlag myndi veikja það enn. Höldum í eignarfallið með bíða.