Posted on

Óháðir að gera gott mót

Það vekur athygli þegar framboðslistar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor eru skoðaðir hvað „óháðir“ eru að gera gott mót eins og sagt er. Þeir bjóða fram með Samfylkingunni í Árborg og Suðurnesjabæ, með Sjálfstæðisflokknum í Vogum og Hrunamannahreppi, með Framsóknarflokknum í Suðurnesjabæ og Strandabyggð, með Vinstri grænum í Múlaþingi og Norðurþingi, og svo mætti lengi telja – kannski er þetta bundið við gamla fjórflokkinn, ég finn ekki dæmi um að óháðir bjóði fram með Miðflokknum eða Viðreisn þótt svo kunni vel að vera. Þetta er svo sem ekkert nýtt og ég hef skrifað um þetta áður – „óháðir“ hafa boðið fram í samstarfi við ýmsa flokka í flestum kosningum a.m.k. frá fjórða áratug tuttugustu aldar.

En auðvitað er ekkert vit í þessu. Lýsingarorðið óháður er skýrt 'frjáls, óbundinn' í Íslenskri nútímamálsorðabók, en hópur fólks sem býður fram sameiginlegan lista með tilteknum stjórnmálaflokki er þar með vitaskuld ekki óháður lengur í neinum eðlilegum skilningi orðsins. Hann hlýtur að vera háður flokknum sem hann býður fram með á einhvern hátt – væntanlega hefur verið gerður einhver málefnasamningur eða samstarfssamningur milli aðilanna. Þarna væri t.d. hægt að tala um lista X-flokks og óflokksbundinna eða eitthvað slíkt – en ekki óháðra. Það er misnotkun á lýsingarorðinu óháður. Við þurfum að gæta þess að láta stjórnmálafólk og flokka ekki komast upp með að gera orð merkingarlaus með því að nota þau ranglega.