Posted on

Að gera gott mót

Í pistli sem ég skrifaði fyrr í dag notaði ég sambandið gera gott mót sem ég efast um að ég hafi notað áður í riti enda er það ekki gamalt í málinu og er ekki að finna í orðabókum svo að ég sjái. Væntanlega er uppruna sambandsins að leita í notkun orðsins mót í merkingunni 'íþróttamót' og lengi hefur verið talað um að eiga gott mót í merkingunni 'ná góðum árangri á mótinu'. En í Fréttablaðinu 2005 segir Ólafur Stefánsson: „Það er bara að hafa gaman af þessu og standa sig vel. Gera gott mót eins og maður segir stundum. Gott mót er að vera númer eitt eða tvö í riðlinum.“ Þarna er vissulega verið að vísa til handboltamóts en orðalagið „eins og maður segir stundum“ bendir samt til þess að mót sé þarna einnig notað í yfirfærðri merkingu.

Elsta dæmi sem ég finn um sambandið gera gott mót í yfirfærðri merkingu er í Morgunblaðinu 2000: „Þéttur hljómur, kraftur og keyrsla sem og skemmtilegar raddaðar laglínur gera einkar gott mót.“ Sambandið breiddist fljótt út eftir aldamótin – í Viljanum 2001 segir: „Viddi er sniðugur strákur sem mun án efa gera gott mót sem Listóformaður á næsta ári“ og „Setjið X-ið á réttan stað og þá mun Málfó gera gott mót næsta vetur!“. Í DV 2003 segir: „Liturinn gerir gott mót, myndi að minnsta kosti vekja athygli.“ Í DV 2006 segir: „Hún hefur þó ekki þótt gera jafn gott mót með nýju plötunni sinni“ og „Hann kom út fyrir síðustu jól og þótti gera gott mót.“ Í Fréttablaðinu 2006 segir: „Og hún Posh Beckham er aldeilis að gera gott mót í þessari viku.“

Merkingin í gera gott mót í þessum samböndum er 'virka vel, ná góðum árangri, standa sig vel, slá í gegn' eða eitthvað slíkt – svolítið misjöfn eftir samhengi en þó alltaf augljós. Sambandið hefur verið að gera gott mót undanfarin ár. Í Risamálheildinni eru tæp 1600 dæmi um það – í einhverjum þeirra hefur það bókstaflegu merkinguna 'íþróttamót' eins og í „veðrið var auðvitað frábært sem hjálpaði okkur að gera gott mót betra“ í Feyki 2014, en í langflestum tilvikum er þó um yfirfærðu merkinguna að ræða. Sambandið er vissulega fremur óformlegt, enn sem komið er, en af dæmunum í Risamálheildinni eru þó tæp 600 úr öðrum textum af en samfélagsmiðlum og sambandinu hefur m.a. brugðið fyrir í ræðum á Alþingi.

Út frá áðurnefndri notkun sambandsins eiga gott mót í merkingunni 'ná góðum árangri á mótinu' hefur verið farið að túlka sambandið gott mót út af fyrir sig sem 'góður árangur' og eiga gott mót er þá notað í merkingunni 'standa sig vel' eða eitthvað slíkt án þess að vísað sé til móts, eins og í „þarf hinn ungi Petr Cech í markinu líklega að eiga gott mót“ í Fréttablaðinu 2004. En þegar gott mót er þannig farið að lifa sjálfstæðu lífi er hægt að fara að nota það með öðrum sögnum en eiga gera er kannski notuð vegna þess að hún felur í sér meiri sjálfstæða virkni af hálfu þeirra sem vísað er til en eiga. Íslenskunni er nauðsyn að vera í stöðugri endurnýjun og mér finnst gera/eiga gott mót fín viðbót við flóru íslenskra orðasambanda.