Í morgun kom í „Málspjalli“ forvitnileg spurning um orðasambandið Morgunstund gefur gull í mund sem er skýrt 'morgunstund færir auð/farsæld í hönd' í Merg málsins eftir Jón G. Friðjónsson, enda getur orðið mund þýtt 'hönd', eins og í samsetningunni mundlaug. Fyrirspyrjandi sagðist alltaf hafa skilið sambandið á þennan veg – „að við fáum gull í hönd þegar við vöknum snemma og nýtum hvíldan og ferskan huga til að afkasta miklu í kyrrð og ljóma morgunsins“. En mund getur líka merkt 'tími' og kemur í þeirri merkingu bæði fyrir í kvenkyni og hvorugkyni, og einnig í karlkynsmyndinni mundur, og fyrirspyrjandi sagði því: „Svo fór ég allt í einu að efast, er það tími sem er gulls virði sem við eignumst?“
Hvað sem orðið mund merkir þarna er ljóst að yfirfærð merking sambandsins er 'sá eða sú sem fer snemma á fætur kemur miklu í verk' eins og segir í Íslenskri nútímamálsorðabók. Það er samt sem áður forvitnilegt að reyna að finna út hver hin bókstaflega merking í mund sé og þá reynist fleira koma til greina en 'hönd' og 'tími'. Í Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924 er sambandið þýtt 'Morgenstund har Guld i Mund' sem er dönsk mynd sambandsins, en mund á dönsku merkir 'munnur'. Í öðrum málum þar sem sambandið kemur fyrir er orð sem þýðir munnur einnig notað – á norsku Morgenstund har gull i munn, á sænsku Morgonstund har guld i mund (þar sem mund er eldri mynd fyrir mun) og á þýsku Morgenstund hat Gold im Mund.
Danska sambandið er sagt komið úr þýsku, og íslensk gerð þess er væntanlega komin úr dönsku eða beint úr þýsku þar sem hafa verið uppi ýmsar kenningar um uppruna þess. Áður var talið að það ætti í raun hliðstæðu eða rætur í norrænu þar sem fræðimenn töldu sig hafa fundið sambandið Morgunstund hefir gull í mund og töldu mund þá merkja 'hönd'. En farið var að draga þessa skýringu í efa þegar í ljós kom að sambandið kemur í raun ekki fyrir í forníslensku og ekki heldur í þýskum málsháttasöfnum frá sextándu öld og er því sennilega yngra en svo – og því tæplega hægt að rekja það til orðsins *munt sem var löngu horfið úr málinu. Orðið mund í merkingunni 'hönd' var mjög sjaldgæft í forníslensku og aðeins notað í skáldamáli.
Sú skýring sem nú virðist talin líklegust á uppruna sambandsins í þýsku er að það sé þýðing eða umorðun á latneska málshættinum aurora musis amica sem merkir bókstaflega 'dögunin er vinur (lista-/mennta-)gyðjanna' og hefur sömu yfirfærðu merkinguna og þær gerðir sem hafa orðið mund. Í þýsku riti frá seinni hluta sautjándu aldar eru latnesk og þýsk gerð málsháttarins tilfærðar hvor á eftir annarri: „Aurora Musis amica, Die Morgenstund hat das Brod im Mund“. Þar merkir Mund greinilega 'munnur' og vitanlega er brauð í munn eðlilegt samband en í elstu þýskum dæmum um málsháttinn er í viðbót við eða í staðinn fyrir Gold oft haft Arbeit, Brot eða Gott. Ekki virðist ólíklegt að Mund hafi upphaflega komið inn í málsháttinn rímsins vegna.
Elsta íslenska dæmið um málsháttinn er í Dægrastyttingu eftir Stein Jónsson Hólabiskup frá 1727: „Morgunstund hefur gull í mund segjum vér í almennu máltæki.“ Þarna, og æ síðan, er notuð myndin mund eins og í dönsku og þýsku, enda þótt hún hafi aldrei getað merkt 'munnur' í íslensku. En ef myndin munn hefði verið notuð hefði rímið farið forgörðum og málshátturinn orðið mun svipminni. Hugsanlegt er að þegar málshátturinn var tekinn inn í íslensku hafi mund í raun verið endurtúlkað til að halda ríminu og skilið sem 'hönd' sem er merkingarlega eðlilegt – lærðir menn hafa þekkt þá merkingu úr skáldamáli þótt orðið væri aldrei notað í almennu máli. En upphaflega merkingin í mund virðist sem sé vera 'munnur' en hvorki 'hönd' né 'tími'.

+354-861-6417
eirikurr