Ég sá á Vísindavefnum nýtt svar Guðrúnar Kvaran við spurningunni „Hvers vegna er sagt að maður sé „heitinn“ þegar maður er dáinn?“. Guðrún bendir á að heitinn er lýsingarháttur þátíðar af sögninn heita sem merkir m.a. ‚bera tiltekið nafn‘ – „Jón heitinn er látinn en hann hét Jón í lifanda lífi og sama er að segja um Guðrúnu heitna, látna konu sem hét Guðrún í lifanda lífi“ segir hún. En þótt heitinn sé vissulega upphaflega beygingarmynd af heita er það eiginlega orðið sjálfstætt lýsingarorð eins og títt er um lýsingarhætti og er uppflettiorð í Íslenskri nútímamálsorðabók, skýrt 'sem er dáinn, ekki lengur á lífi'. Í Málfarsbankanum segir: „Þegar látinn einstaklingur er nafngreindur er hvort heldur hægt að segja heitinn eða sálugi.“
Þótt þessar merkingarskýringar séu í sjálfu sér ekki rangar eru þær ónákvæmar – það skiptir nefnilega máli hversu langt er síðan fólkið var á dögum. Við segjum ekki Snorri heitinn Sturluson eða Torfhildur heitin Hólm eða neitt slíkt – en við hvað er miðað? Ég velti þessu upp í „Málspjalli“ á Facebook fyrir fimm árum og þá urðu heilmiklar umræður um það. Meðal þess sem þar kom fram er að við notum heitin(n) fremur þegar við teljum óvíst að hlustandinn eða lesandinn viti að sú eða sá sem um er rætt er látin(n). Það rímar í sjálfu sér við það að við notum ekki heitin(n) um fólk sem var uppi fyrir löngu – það liggur ljóst fyrir að það fólk er látið og því ástæðulaust og óþarft að nota heitin(n) vegna þess að það hefur ekkert upplýsingagildi.
Yfirleitt held ég að maður þurfi að hafa þekkt þann eða þá sem um er rætt til að geta notað heitin(n), nema um þjóðþekkt fólk sé að ræða. Önnur amma mín dó löngu áður en ég fæddist og ég get ekki sagt Nanna heitin amma um hana – hins vegar get ég sagt amma heitin um hina ömmu mína sem ég man vel eftir. Sé verið er að tala um einhvern sem maður þekkti ekki persónulega heldur úr opinberri umfjöllun má ekki vera mjög langt síðan viðkomandi dó. Ég get alveg sagt Davíð heitinn Oddsson en tæplega Kristján heitinn Eldjárn. Yfirleitt er heitinn ekki notað um þekkt fólk í útlöndum – mér fyndist t.d. fráleitt að segja Dolly heitin Parton. Að vísu má finna slæðing af dæmum eins og Adolf heitinn Hitler en það er sagt í hálfkæringi.
Eitt af því sem fólk greinir á um er hvort hægt sé að nota heitin(n) með öðrum orðum en nöfnum fólks, eins og amma heitin, pabbi heitinn og öðrum skyldleikaorðum. Mér og mörgum öðrum finnst það eðlilegt en öðrum finnst það fráleitt, enda rímar það auðvitað ekki við þá skýringu sem áður er nefnd, að heitin(n) vísi til nafnsins sem fólk hét. Skyldleikaorðin eru reyndar eins konar ígildi nafns, en það eru líka til dæmi eins og „Abram er [...] aðeins fimm sentimetrum lægri en forsetinn heitinn“ í Tímanum 1969 og „Vinur minn heitinn var líka bílamálari“ í Víkurfréttum 2016 sem sýna glöggt að heitin(n) er stundum einfaldlega notað í merkingunni ‚sem er látin(n)‘. Vissulega eru þess ótal dæmi að orð fjarlægist uppruna sinn á þennan hátt.
En svo er ekki víst að heitin(n) tengist nafni þeirra sem um er rætt. Í umræðu í „Málspjalli“ benti Sigurður H. Pálsson á að heita getur líka merkt 'kalla (á)' og heitinn þar af leiðandi 'kallaður'. Upphafleg merking í heitinn væri því 'kallaður (til skapara síns)'. Ég treysti mér ekki til að segja hvor skýringin er réttari en finnst þetta hreint ekki fráleitt. En stundum er heitin(n) líka notað um annað en fólk. Í Dagbók í Höfn eftir Gísla Brynjólfsson frá miðri nítjándu öld segir: „eg var [...] að blaða í Sunnanpóstinum heitnum.“ Í Helgarpóstinum 1987 segir: „Segja má að Kommúnistaflokkurinn sálaði og Sósíalistaflokkurinn heitinn hafi haslað sér völl.“ Í Fréttablaðinu 2005 segir: „Þetta hljómar eins og Þjóðviljinn heitinn á vondum degi.“
Það er ljóst að málnotendur hafa mismunandi tilfinningu fyrir því hvenær eðlilegt sé að nota heitin(n) og í áðurnefndri umræðu í „Málspjalli“ kom fram að sumum finnst orðið óviðfelldið og nota það ekki. Sigurður Nordal sagði í Rétti 1917: „Af öllum íslenzkum þjóðarsiðum held ég að mér sé ekki ver við neinn en þann að geta aldrei nefnt látinn mann án þess að hnýta við nafnið merkinu „heitinn“ eða „sálugi“. Mér finst altaf sá sem talar vera með þessu að reisa múr á milli sín og dána mannsins, benda á að þráðurinn sé kliptur sundur.“ En orðið heitin(n) hefur lengi verið gífurlega algengt þótt ég hafi reyndar á tilfinningunni að notkun þess hafi farið minnkandi að undanförnu og tölur á tímarit.is bendi líka til þess að svo sé.

+354-861-6417
eirikurr