Í tillögu Miðflokksins í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sem ég skrifaði um í gær segir: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að Hafnarfjarðarbær noti vandað og hefðbundið íslenskt mál í öllu efni […]. Í samræmi við þetta verði fylgt opinberum ritreglum og viðtekinni málvenju um málfræðilegt kyn. Þegar vísað er til fólks almennt eða hóps af óákveðnu kyni verði notað sjálfgefið málfræðilegt kyn, sem er hin hefðbundna málnotkun í íslensku […].“ Óháð skoðunum fólks á því efnisatriði sem þarna er vísað til, notkun málfræðilegra kynja í almennri vísun, kemur fram í þessari tillögu grundvallarmisskilningur sem því miður hefur verið ríkjandi í íslenskri málfarsumræðu og íslenskri málstefnu áratugum saman.
Það er vissulega rétt að ýmsar tilraunir sem hafa verið gerðar til að draga úr karllægni málsins á undanförnum árum ganga gegn íslenskri málhefð – eða því sem verið hefur íslensk málhefð. En misskilningurinn felst í því að telja að málhefð – eða hefð yfirleitt – sé hægt að viðhalda með lögum eða reglum. Orðið hefð er skýrt ‚rótgróinn siður‘ í orðabókum, en orðið siður er skýrt ‚reglulegt hegðunaratriði, venja‘ í Íslenskri nútímamálsorðabók. Það sem er kallað „íslensk málhefð“ er hefð vegna þess að – og ef – það lýsir þeim venjum sem hafa mótast um það hvernig málið sé. En hefðir og venjur í samskiptum fólks geta breyst, og breytast venjulega með tímanum, og það á líka við um málvenjur og málhefð.
Áratugum saman hefur verið reynt að viðhalda meintri íslenskri málhefð með tilskipunum – boðum og bönnum. Eins og augljóst má vera hefur það ekki gengið og nægir þar að nefna hina svonefndu „þágufallssýki“ sem heldur áfram að breiðast út þrátt fyrir að barist hafi verið hatrammlega gegn henni í heila öld. Hið sama verður uppi á teningnum með kynhlutlaust mál – ef málnotendur kjósa að nota það verður það notað, óháð lögum og reglum. Hefðin mun breytast. Málhefðin lýtur nefnilega ekki boðum að ofan heldur mótast og breytist hjá málnotendum. Hefð sem þarf að viðhalda með lögum og reglum er ekki lengur hefð – hún er þá orðin kvöð. Íslensk málhefð verður íslensk málkvöð. Viljum við það?

+354-861-6417
eirikurr