Posted on Ein athugasemd

Á að segja niðurstöður prófkjöranna eða prófkjaranna?

Eins og við er að búast þegar kosningar nálgast ber orðið prófkjör stundum á góma, þótt minna sé reyndar um prófkjör nú en venjulega vegna skamms fyrirvara á kosningum. Orðið er hálfrar annarrar aldar gamalt í málinu – elsta dæmi um það er í Víkverja 1874: „Nokkru á undan kjörþingi koma menn erlendis saman, þeir er kjósa eiga, og halda pá prófkjör.“ En orðið sést ekki aftur á tímarit.is fyrr en rúmri hálfri öld síðar og var sárasjaldgæft lengi vel. Upphaflega vísaði það til aðferðarinnar prófkjör fremur en einstakra kosninga, eins og í „Sjálfstæðismenn boða til prófkjörs í öllum kjördæmum“ í Morgunblaðinu 2009 og var þá eðlilega eingöngu notað í eintölu, en um miðja öldina var farið að nota það til að vísa til einstakra kosninga.

Samfara þessari breytingu snarfjölgaði dæmum um orðið, og breytingin kallaði á að hægt væri að nota orðið í fleirtölu. Elsta dæmi sem ég finn um fleirtöluna er í Tímanum 1946: „Miðstjórnarmaður flokksins í Suður-Þingeyjarsýslu […] færði almenn prófkjör flokksmanna í sýslunni tal við hann í vetur.“ Í Tímanum 1952 segir: „Eins og sakir standa er erfitt að spá um úrslitin í prófkjörunum hjá republikönum.“ En ekki hugnaðist öllum þetta – í bréfi í þættinum „Íslenskt mál“ í Morgunblaðinu 1986 sagði að „ekki fyrir margt löngu“ hefði orðið „fallið í kviksyndi fleirtölunnar“ og Gísli Jónsson sagði í sama þætti: „Prófkjör fer illa í fleirtölu“ og bætti við: „Hugsum okkur bara eignarfallið. Á það að vera prófkjara eða prófkjöra?“

Elstu dæmi um báðar eignarfallsmyndirnar eru jafngömul, frá árinu 1970. Í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls eru báðar myndir gefnar og í athugasemd þar við orðið kjör segir: „Í merkingunni skilmálar; hagur; laun er orðið aðeins notað í fleirtölu og þar er eignarfallið alltaf kjara“ en „Í merkingunni val, kosning er orðið yfirleitt haft í eintölu. Í þessari merkingu er fleirtalan fágætari og þá er eignarfallið yfirleitt kjöra, t.d. í samsetta orðinu prófkjör.“ Þetta er þó ekki rétt – á tímarit.is er hlutfallið milli prófkjara og prófkjöra u.þ.b. 3:4, en í Risamálheildinni er það u.þ.b. 5,5:4,5. Myndin prófkjara sækir því greinilega á og í Málfarsbankanum er ekki gert upp á milli myndanna og sagt: „Ef.ft. prófkjara eða prófkjöra.“

Langflest hvorugkynsorð sem hafa ö í stofni í nefnifalli, þolfalli og þágufalli fleirtölu fá a í eignarfalli fleirtölu. Þetta eru orð eins og börn – barna, lönd – landa, göt gata o.m.fl. Sama gildir um orð sem aðeins eru til í fleirtölu (í tiltekinni merkingu) eins og kjör, lög o.fl. – eignarfall þeirra er kjara og laga. Út frá þessu mynstri mætti búast við eignarfallinu prófkjara af nefnifalli fleirtölu prófkjör. En öfugt við prófkjör hafa þessi orð a í stofni í eintölunni, ef þau hafa eintölu á annað borð: barn, land, gat. Hvorugkynsorð sem hafa ö í stofni í eintölunni, eins og prófkjör, halda því hins vegar í allri fleirtölunni – líka eignarfalli. Þetta eru orð eins og rör, uppgjör, ör sem eru röra, uppgjöra, öra í eignarfalli fleirtölu – ekki *rara, *uppgjara, *ara.

Þegar málnotendur þurfa að nota tiltölulega sjaldgæfar beygingarmyndir eins og eignarfall fleirtölu, sem óvíst er að þeir hafi lært sérstaklega, leita þeir – ósjálfrátt og ómeðvitað – að mynstri til að fara eftir, og í þessu tilviki er um tvennt að ræða. Annars vegar er hægt að miða við beygingardæmið í heild og þá verður eignarfallið prófkjöra af því að orðið hefur ö í stofni í eintölunni. Hins vegar er hægt að miða eingöngu við fleirtöluna og þá verður eignarfallið prófkjara af því að þannig er það oftast af orðum með ö í nefnifalli fleirtölu – auk þess sem líklegt er að eignarfall fleirtöluorðsins kjör styrki þessa mynd. En þetta val milli mynstra getur verið truflandi – „Mér þykir hvort tveggja álíka hallærislegt“ sagði Gísli Jónsson.

1 thought on “Á að segja niðurstöður prófkjöranna eða prófkjaranna?

  1. Fróðleg umfjöllun um hvernig beyging og hefð togast stundum á. Mér finnst sérstaklega gagnlegt að þú skýrir muninn á því sem hljómar eðlilegt í daglegu máli og því sem málfræðin leyfir. Þetta minnir mig á þegar maður heldur utan um hugtök eða lista á netinu, til dæmis Fortnite Sprite Checklist, þar sem skýr röðun og nákvæm orð skipta máli. Takk fyrir að setja þetta fram svona yfirvegað.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.