Í fyrirsögn á Vísi nýlega sagði „Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón“ og á mbl.is var fyrirsögn fréttar um sama mál „Misnotaði debetkort vitskerts vistmanns“. Í „Málvöndunarþættinum“ og víðar voru gerðar athugasemdir við þessa málnotkun og haldið fram að lýsingarorðið vitskertur væri þarna ranglega notað. Í dómnum sem vísað er til í báðum fréttum er þetta orð ekki notað, heldur sagt að maðurinn sem um er rætt sé „með vitræna skerðingu“. Í fljótu bragði mætti vissulega ætla að það merkti sama og vitskertur, enda eru til hliðstæð orð eins og greindarskertur sem merkir 'sem hefur skerta greind, er með þroskahömlun' og þroskaskertur sem merkir 'með skertan vitsmunaþroska, þroskahamlaður'.
En vitskertur merkir samt ekki 'með skert vit' eða 'með vitræna skerðingu'. Í Íslenskri nútímamálsorðabók er það skýrt 'genginn af vitinu, bilaður' og í Íslenskri orðabók er skýringin 'vitfirrtur, brjálaður'. Elsta dæmi um orðið er frá 1761, úr bréfi frá Jóni Ólafssyni úr Grunnavík, og þá þegar er það notað í merkingunni 'galinn'. Svipuð merking er í sambandinu ganga af vitinu. Orðið vit hefur ýmis merkingartilbrigði, og í vitskertur, vitfirrtur og ganga af vitinu vísar það fremur til skynsamlegrar hegðunar en til greindar eða þekkingar. Orðið vitskertur er líka stundum notað um annað en fólk – bandarískri kvikmynd var t.d. eitt sinn gefið heitið „Vitskert veröld“ á íslensku og „Vitskert veröld“ er einnig heiti á lagi og ljóði eftir Einar Vilberg.
Þetta er gott dæmi um það hvernig samsett orð þróast oft í átt frá gagnsæi og öðlast sjálfstætt líf. Orðin greindarskertur og þroskaskertur eru tiltölulega nýleg – elstu dæmi um þau bæði eru frá því kringum 1970. Þau eru enn fullkomlega gagnsæ eins og áður segir – merkja 'með skerta greind/þroska'. En vitskertur er margra alda gamalt orð sem hefur haft góðan tíma til að fjarlægjast uppruna sinn og fá sína eigin merkingu sem er ekki fullkomlega augljós út frá samsetningarliðunum. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að fólk skilji vitskertur sem 'með skert vit+ hliðstætt við greindarskertur og þroskaskertur, en sá skilningur er ekki í samræmi við málhefð og hér sem endranær er rétt að halda sig við hefðina nema ríkar ástæður séu til annars.

+354-861-6417
eirikurr