Posted on

24/7

Styttingin 24/7, lesið twenty-four-seven, er ættuð úr ensku og merkir 'tuttugu og fjórar klukkustundir sjö daga vikunnar', þ.e. í raun 'alltaf'. Hún mun hafa komið fram fyrir u.þ.b. fjörutíu árum en fór að sjást í íslensku skömmu fyrir aldamót. Elsta dæmið sem ég finn um þetta í íslensku samhengi í heiti tímaritsins 24/7 sem byrjaði að koma út 1999 og fylgdi Morgunblaðinu um tíma kringum aldamótin. Upp úr því fara að sjást dæmi um þetta í texta. Í Morgunblaðinu 2001 fylgir skýring, enda styttingin þá enn lítið þekkt: „Þetta fellur undir svokallaða 24/7-þjónustu, þ.e. hún er virk allan sólarhringinn alla daga vikunnar.“ Í DV 2001 segir: „Ég var í Valsgallanum 24/7.“ Í DV 2002 segir: „Ég er náttúrlega í þessu 24/7.“

Undanfarin ár hefur þetta samband verið mjög mikið notað í íslensku, einkum í óformlegu máli en einnig í auglýsingum verslana og þjónustufyrirtækja. A.m.k. síðan 2010 hefur tíðkast að auglýsa „opið 24/7“. Reyndar virðast auglýsendur stundum hafa gleymt, eða ekki áttað sig á, hvað sambandið merkir, eða merkti upphaflega, eins og þegar auglýst er að opið sé „24/7“ tiltekinn dag – „26. des. Opið 24/7“. Þarna er það notað í merkingunni 'allan sólarhringinn' en vísar aðeins til þessa tiltekna sólarhrings – „7“-hlutinn sem vísar til allra daga vikunnar fellur dauður niður. Þá er eðlilegt að spyrja hvers vegna í ósköpunum sé verið að nota þetta enska samband ef það er ekki einu sinni notað eins og það er hugsað.

Ólíkt mörgum öðrum enskum orðum og orðasamböndum sem hafa orðið algeng í íslensku á seinustu árum hefur þetta samband ekki aðlagast málinu á nokkurn hátt, að ég best veit. Það er alltaf borið fram á ensku – ég hef aldrei heyrt sagt tuttugu og fjóra(r) sjö eða neitt slíkt, enda væri slíkt samband ekki í samræmi við íslenskar reglur um gerð orða eða orðasambanda. Þess vegna fer þetta samband ekki vel í íslensku og er auk þess algerlega óþarft – í staðinn fyrir opið 24/7 er einfalt að segja alltaf opið, og í staðinn fyrir opið 24/7 á nýársdag er einfalt að segja opið allan sólarhringinn á nýársdag. Almennt finnst mér ensk tökuorð frekar meinlaus en þetta samband fellur ekki að málinu og ætti ekki að sjást eða heyrast í íslensku að mínu mati.