Posted on

Andstaða við mikið af: Misskilin málvöndun

Í Málfarsbankanum segir: „Illa getur farið á því að nota orðasambandið mikið af einhverju um það sem er teljanlegt og eðlilegra væri að nota lýsingarorðið margur: Margir bílar (síður: „mikið af bílum“), margar flugvélar (síður: „mikið af flugvélum“). Einnig þykir mörgum sem lýsingarorðið margur fari betur með orðinu fólk: Margt fólk (síður: „mikið af fólki“).“ Ég hef áður skrifað um mikið af fólki og sýnt fram á að það orðalag er í raun rökréttara en margt fólk vegna þess að orðið fólk er ekki teljanlegt þótt fyrirbærið sem vísað er til sé það, og þótt margt fólk eigi sér vissulega lengri hefð hljóti hvort tveggja að teljast rétt. En það er reyndar ekki rétt að það fari endilega verr á því að nota mikið af um teljanleg fyrirbæri heldur.

Ef mælt er með því að taka t.d. margir bílar fram yfir mikið af bílum hlýtur forsendan að vera sú að samböndin merki alveg það sama – en ég held að svo sé ekki endilega. Þegar sambandið mikið af er notað er áhersla fremur á heildina, hópinn, massann, magnið, en í margir er áherslan fremur á einstaklingana. Í Degi 1950 segir t.d.: „Þjóðverjar eru farnir að framleiða mikið af bílum til útflutnings.“ Í Fjallkonunni 1908 segir: „Það er þegar orðið alt of mikið af bókum í heiminum.“ Hér væri mun óeðlilegra að tala um marga bíla og margar bækur. Í Æskunni 1933 segir: „Eftir þetta var oft mikið af fuglum fyrir utan gluggann hans Nonna litla.“ Þarna væri vissulega hægt að tala um marga fugla en áherslan er þá dálítið önnur.

Um orðið gegnir sama máli og fólk – þótt fyrirbærið sem vísað er til sé teljanlegt (þegar það merkir 'kvikfé') er orðið sjálft það ekki því að það er aðeins til í eintölu. Það mætti því búast við að um væri notað mikið af eins og um safnheiti, en mun algengara er þó að tala um margt fé, eins og margt fólk. En mikið af er líka notað þegar það á við – „Hafa kaupmenn keypt mikið af fé á fæti“ segir í Austra 1905. Orðið fugl getur líka verið safnheiti og þá er mikið af notað með því – „Oft var mikið af fugli drepið á þennan hátt“ segir í Víði 1934. Þarna væri óeðlilegra að tala um marga fugla. Með öllum orðum sem hér hafa verið nefnd (nema með bílum auðvitað) hefur tíðkast a.m.k. síðan á nítjándu öld að nota sambandið mikið af.

Vitanlega má ræða það hvort fari betur að nota mörg eða mikið af í einstökum tilvikum – merkingarmunurinn er ekki mikill og eðlilegt að fólk hafi mismunandi tilfinningu fyrir þessu. En þegar amast er við sambandinu mikið af, hvort sem er með teljanlegum fyrirbærum eða ekki, og fólki bent á að nota mörg í staðinn er það misskilin málvöndun sem sýnir skilningsleysi á þeim blæbrigðamun sem er á þessu orðalagi – blæbrigðamun sem auðgar málið en spillir því ekki. Hikum ekki við að tala um mikið af bílum, mikið af bókum, mikið af fuglum, mikið af fé og mikið af fólki þar sem okkur finnst það eiga við – en gætum þess samt að mikið af komi ekki alveg í staðinn fyrir mörg. Ýtum undir fjölbreytni í máli í stað þess að berja hana niður.