Á vef Ríkisútvarpsins er sagt frá því að Lionel Messi sé hættur að leika með argentínska landsliðinu og vitnað í tilkynningu hans á Instagram þar sem hann segir að ákvörðunin „særi sig djúpt“. Á mbl.is er vísað í sömu tilkynningu þar sem segir m.a. „í lauslegri þýðingu“: „Þetta var ákvörðun sem særði mig djúpt og gerir enn“ og „kaflar eru að lokast. Þetta er einn þeirra sem særir mig djúpt“. Á Vísi er þýðingin „Þessi ákvörðun er sársaukafull“ og „það særir mig einstaklega mikið að þurfa að loka þessum kafla ferilsins“. Messi skrifar á spænsku og notar sögnina doler sem merkir 'verkja, finna sársauka' eða eitthvað slíkt en mér finnst trúlegt að íslensku þýðingarnar séu gerðar eftir enskum texta þar sem sögnin hurt er notuð.
Í Cambridge-orðabókinni er sögnin hurt m.a. skýrð 'to cause emotional pain to someone' eða 'valda einhverjum tilfinningalegum sársauka'. Það rímar í sjálfu sér ágætlega við sögnina særa sem m.a. er skýrð 'meiða tilfinningar (e-s)' í Íslenskri nútímamálsorðabók og það er því ekki hægt að segja að þýðingin í fréttunum sé merkingarlega röng. En hún er samt ekki í samræmi við íslenska málhefð – það er nefnilega ekki venja að nota sögnina særa í tilfinningalegri merkingu um sjálfan sig. Í setningum eins og „Síðan reyndi hún að fremja sjálfsmorð, en særði sig aðeins lítillega“ í DV 1976 og „Hún hafði flúið veruleikann með því að drekka og dópa og særði sig og skar“ í DV 2018 er vísað til líkamlegs skaða, ekki tilfinningalegs.
Notkunardæmin í Íslenskri nútímamálsorðabók um tilfinningalegu merkinguna í særa eru þetta grín særði hann djúpt og svona framkoma særir tilfinningar hennar. Í báðum tilvikum eru særindin sem sé utanaðkomandi, af völdum einhverra annarra, og þannig hefur sögnin alltaf verið notuð í íslensku. Áðurnefndar fréttir eru dæmi um það þegar gripið er til íslensks orðs sem í sjálfu sér hefur þá merkingu sem við á, en án þess að huga að því hvernig venja er að nota orðið í íslensku samhengi. Í staðinn fyrir að þýða orð Messi sem „særði mig djúpt“ hefði mátt segja olli mér miklum sársauka, var mjög sársaukafull, var mér tilfinningalega þungbær, o.fl. Það er mikilvægt að virða íslenska málhefð en láta ekki enskuna stjórna orðalaginu.

+354-861-6417
eirikurr