Posted on

Að gera fíl úr mýflugu

Í frétt um nágrannaerjur í DV í gær var haft eftir konu: „Ég held að það sé verið að gera fíl úr mýflugu.“ Á þetta var m.a. bent í „Málvöndunarþættinum“ á Facebook enda virðist hér um að ræða afbökun á alþekktu orðasambandi, gera úlfalda úr mýflugu, sem merkir 'gera of mikið úr einhverju'. Eins og Jón G. Friðjónsson rekur í Merg málsins kemur það samband fyrst fyrir í Vídalínspostillu frá upphafi átjándu aldar en af því eru til ýmis afbrigði, svo sem gjöra flugu úr úlfalda frá fyrri hluta átjándu aldar – og mynda fíla úr mýflugum frá fyrri hluta nítjándu aldar. Jón bendir á að sambandið eigi sér erlendar fyrirmyndir þar sem talað er um fíl en ekki úlfalda – í dönsku er sagt gøre en myg til en elefant og í þýsku aus einer Mücke einen Elefanten machen.

Það má finna slæðing af íslenskum dæmum um að fíll sé notaður í þessu orðasambandi. Í Ísafold 1918 segir: „Er hér heldur freklega gerður fíll úr mýflugu.“ Í Tímanum 1925 segir: „Fyrst kemur stóreflis fíll og svo verður þetta að agnarlítilli mýflugu.“ Í Alþýðublaðinu 1948 segir: „Illgjarnar tungur grípa hverja mýflugu, sem færi gefst á og slá hana upp í fíl.“ Í Morgunblaðinu 1954 segir: „Sumum ágætismönnum hættir þó til að gleyma þessu og gera því stundum fíl úr mýflugu.“ Í Vísi 1963 segir: „þeir gætu gert mýflugu að fíl.“ Í Tímanum 1970 segir: „Nú er konan mín rétt einu sinni búin að gera fíl úr mýflugu.“ Í Morgunblaðinu 1996 segir: „Fjölmiðlar […] hafa undanfarið gert fíl úr mýflugu líklegrar vinstri sameiningar.“ Fleiri dæmi má finna.

En þar með er ekki öll sagan sögð. Í Náttúrufræðingnum árið 2000 segir: „Oft er talað um að gera úlfalda úr mýflugu. Þróun íslensks máls hefur samt verið á annan veg. Forfeður okkar gerðu úlfalda úr fíl.“ Þetta er hárrétt – eins og segir í Íslenskri orðsifjabók er orðið úlfaldi komið af latneska orðinu elephantus (eléphas í grísku) sem merkir 'fíll'. Í grein á Vísindavefnum segir Guðrún Kvaran: „Germanir, þar á meðal Íslendingar, kynntust orðinu snemma en færðu það yfir á annað dýr, úlfaldann eins og hann heitir núna hjá okkur.“ Guðrún segir einnig: „Enska og þýska týna niður merkingunni 'úlfaldi' en taka upp latneska orðið elephant/Elephant í merkingunni 'fíll'. Í Norðurlandamálum er einnig notað tökuorðið elefant í stað fil áður.“

Umrætt samband vísar til þess að gera mikið úr litlu og mýfluga er vissulega lítil en úlfaldi er ekki dæmigerður fyrir hugmyndir nútímafólks um stór dýr – en það er fíllinn hins vegar. Því má segja að sambandið gera fíl úr mýflugu sé myndrænna og nái betur þeirri merkingu sem að er stefnt en hið hefðbundna gera úlfalda úr mýflugu. Eins og áður segir á sambandið sér erlendar rætur og notkun orðsins úlfaldi í því í íslensku má líklega rekja til annarra dæma þar sem orðið var upphaflega notað sem dæmi um stórt dýr (e.t.v. fyrir misskilning), svo sem „Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga“ í Biblíunni. Það er því ljóst að ýmis rök eru fyrir myndinni gera fíl úr mýflugu og hún hefur eitthvað tíðkast. Því er engin ástæða til að amast við henni.