Posted on

Óskiljanlegur reglugerðartexti

Í breytingu á reglugerð um ökuskírteini síðan í sumar segir að eftirfarandi bætist við 5. tölulið 6. greinar: „c. ökutæki sem eru knúin óhefðbundnu eldsneyti, sem um getur í 2. gr. tilskipunar ráðsins 96/53/EB, með leyfilegan hámarksmassa yfir 3.500 kg en sem fer ekki yfir 4.250 kg við flutning á vörum án eftirvagns, þar sem aksturinn er í höndum handhafa ökuskírteinis í flokki B sem var gefið út a.m.k. tveimur árum áður, að því tilskildu að massinn sem fer yfir 3.500 kg sé eingöngu vegna umframmassa knúningskerfisins í tengslum við knúningskerfi ökutækis með sömu mál sem búið er hefðbundnum brunahreyfli með rafkveikju eða þjöppukveikju, og að því tilskildu að flutningsgetan hafi ekki aukist í tengslum við sama ökutæki.“

Gátuð þið lesið þetta án þess að draga andann? Þetta er sem sé ein málsgrein, hundrað orð. Ég setti þetta að gamni inn í sænsku lix-formúluna sem stundum er notuð til að reikna læsileika texta (út frá fjölda málsgreina, fjölda orða og fjölda orða lengri en sex bókstafir) – þótt hún sé vissulega hvorki fullkomin né óumdeild gefur hún ákveðnar vísbendingar. Samkvæmt henni er eðileg lix-tala barnabóka undir 30, auðlesinn texti og fagurbókmenntir eru milli 30 og 40, miðlungsþungur texti svo sem blaðatexti milli 40 og 50, þungur texti, dæmigerður fyrir stjórnsýslutexta, er milli 50 og 60, og mjög þungur texti („byråkratsvenska“) er yfir 60. En þessi reglugerðartexti sprengdi skalann og fékk lix-töluna 133! – langhæstu lix-tölu sem ég hef séð.

Fyrir utan þetta eru þarna sjaldgæf orð sem ólíklegt er að almenningur þekki, svo sem þjöppukveikja og knúningskerfi. Eftir að hafa lesið þetta margoft held ég helst að þetta merki eitthvað í þá átt að þrátt fyrir að ökuréttindi í B-flokki miðist almennt við bíla sem eru 3.500 kíló eða léttari þá megi þau sem hafa þessi réttindi keyra rafbíl sem er allt að 4.250 kíló ef þyngdin umfram 3.500 kíló stafar eingöngu af þyngd rafhlöðunnar og búnaðar kringum hana. Það er reyndar sérkennilegt að tala um rafmagn sem „óhefðbundið eldsneyti“ – ef það er merkingin, sem ég er svo sem ekki alveg viss um. Fyrir utan óskiljanleika textans er reglugerðin líka gölluð vegna þess að á undan textanum þyrfti að standa „Réttindi til að stjórna“.

Ég sá þennan texta á Facebook hjá ökukennara sem benti á að ætlast væri til að ökunemum væri kennt þetta og þeim er sannarlega vorkunn að þurfa að læra þetta – og skilja. Ég hef fullan skilning á því að orðalag reglugerða af þessu tagi þurfi að vera nákvæmt og ótvírætt og verði þess vegna stundum tyrfið, en nákvæmnin má ekki verða til þess að textinn verði því sem næst óskiljanlegur eins og í þessu tilviki – þá er hún farin að vinna gegn tilgangi sínum. Þessi texti er vitanlega algerlega óboðlegur í reglugerð sem varðar allan almenning og er skýrt brot á lögum um íslenska tungu þar sem segir: „Mál það sem er notað í starfsemi ríkis og sveitarfélaga eða á vegum þeirra skal vera vandað, einfalt og skýrt.“ Það hlýtur að vera hægt að gera betur en þetta.