Í Facebook-hópnum „Málspjalli“ var nýlega spurt hvað fólki fyndist um orðið kvenbóndi. Sameinuðu þjóðirnar ákváðu vorið 2024 að árið 2026 skyldi vera „International Year of the Woman Farmer“ sem þýtt hefur verið „alþjóðlegt ár kvenbóndans“ á íslensku. Orðið kvenbóndi er reyndar ekki nýtt. Það kemur fyrst fyrir í grein Höllu S. Kristjánsdóttur í Frey 1988 – hún segir „ég segi og skrifa kvenbændur, nýtt orð og kannski ekki fallegt“ og bætir við: „En ástæðan fyrir því að ég leyfi mér að nota þetta orð er að orðið bændakona er rangtúlkað af flestum.“ Orðið bóndakona er skýrt 'eiginkona bónda' í Íslenskri nútímamálsorðabók og væntanlega er vísað til þess þarna, þótt orðið sé reyndar einnig skýrt 'kvenkyns bóndi' í Íslenskri orðabók.
Í umræðu um þetta í „Málspjalli“ var nefnt að orðið kvenbóndi væri óþarft þar eð starfsheitið bóndi væri óháð kyni þess sem vísað er til. En sú notkun orðsins er ekki gömul – til skamms tíma var orðið nær eingöngu notað um karlmenn og það er ekki ýkja langt síðan farið var að nota það einnig um konur sem ráku bú. Til marks um það má nefna að í Skagfirzkum æviskrám frá sjöunda áratug síðustu aldar er skammstöfunin „b.“ sem stendur fyrir bóndi höfð á eftir nöfnum karlanna – en ekki á eftir nöfnum þeirra fáu kvenna sem stóðu fyrir búi. Þær eru þess í stað titlaðar búandi sem gæti verið hvort heldur er nafnorð eða lýsingarháttur nútíðar. Á þessum tíma, fyrir sextíu árum, virðist því ekki hafa þótt eðlilegt að nota starfsheitið bóndi um konu.
Skýringar orðabóka sýna að vísu oftast ekki nema óbeint að bóndi vísi eingöngu til karla – í eldri útgáfum Íslenskrar orðabókar er það skýrt 'búandi, maður sem rekur búskap' og vissulega er hugsanlegt að líta svo á að maður hafi þar almenna merkingu en vísi ekki sérstaklega til karlmanna. En í nýjustu útgáfunni frá 2002 hefur verið bætt við skýringunni 'karlmaður sem rekur bú' og merkt „[sögul.]“ sem þýðir að sú merking, þ.e. takmörkunin við karlmann, sé horfin. Í Íslenskri nútímamálsorðabók er orðið skýrt 'sá eða sú sem rekur bú í sveit og er með búfénað, eða stundar ræktun'. Eftir stendur samt að væntanlega er staðalímynd bóndans í huga margra málnotenda ennþá karlmaður, sem styrkist af því að bóndi er vitanlega karlkynsorð.
Vitanlega getur stundum þurft að vísa sérstaklega til kvenna í búskap, eins og þegar þeim er helgað sérstakt ár. En almennt séð er ekki heppilegt að skeyta kven- framan við starfs- eða hlutverksheiti þótt slíkt sé stundum gert, eins og í kvenleiðtogi, kvenkennari, kvenprestur, kvenskáld, kvenstúdent, kvenhetja, o.s.frv. Ástæðan er sú að með því er í raun gefið í skyn að sjálfgefið sé að orðið án kven- vísi til karlmanna og kven-orðið sé einhvers konar afbrigði. Stundum getur þetta líka verið tvírætt, eins og orðið kvenlæknir sem getur merkt bæði 'kvensjúkdómalæknir' og 'læknir sem er kona'. Í því tilviki sem hér um ræðir væri heppilegast að sleppa við að tala um kvenbændur og tala í staðinn um konur í bændastétt eða eitthvað slíkt.

+354-861-6417
eirikurr