Posted on Ein athugasemd

Tímar sólarhringsins

Við segjum að eitthvað gerist á daginn og daginn er þolfall eintölu. Hins vegar segjum við að eitthvað gerist á morgnana og á kvöldin, og þar er morgnana og kvöldin þolfall fleirtölu. Það er útilokað að fara eins með daginn og segja að eitthvað gerist *á dagana, og jafnfráleitt væri að segja að eitthvað gerist *á morguninn eða *á kvöldið. Þá er nóttin eftir, og hún er í eintölu eins og dagurinn – við segjum að eitthvað gerist á nóttunni. En nóttunni er hins vegar ekki þolfall eins og í hinum orðunum, heldur þágufall – það er ekki hægt að segja *á nóttina. Reyndar er hægt að hafa nóttina í fleirtölu, eins og morgunninn og kvöldið, og segjast gera eitthvað á næturnar – og þá er ekki notað þágufall eins og í eintölunni á nóttunni, heldur þolfall.

Við segjum líka að eitthvað gerist kvölds og morgna þar sem kvölds er eintala en morgna fleirtala – það er útilokað að segja *kvölds og morguns eða *kvölda og morgna. Svo segjum við ýmist í gærkvöld eða í gærkvöldi þótt útilokað sé að segja *í kvöldi, eða *í gærmorgni; og við tölum um gærmorgun, gærdag og gærkvöld en sárasjaldan um gærnótt. Ég hef ekki hugmynd um hvernig stendur á þessu undarlega ósamræmi. Auðvitað er ekkert „rökrétt“ í því að þessi fjögur orð sem virðast vera alveg hliðstæð hagi sér á mismunandi hátt, bæði hvað varðar tölu og fall. En eins og ég hef oft nefnt er tungumálið ekki fullkomlega rökrétt, og á ekki að vera það. Svona óskiljanlegt ósamræmi er einmitt eitt af því sem gerir málið svo skemmtilegt.

1 thought on “Tímar sólarhringsins

  1. Sammála því að ýmis "órökvísi" gerir tungumál bara þeim mun skemmtilegri en beinstíf, pottþétt rök eins og í stærðfræði myndu gera. Ef nógu margir aðhyllast "vitleysuna", ja þá fer hún að vera rétt mál. Skemmtilegur vitleysisgangur og allir kátir!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.