Ég geri ráð fyrir að mörg ykkar kannist við hið stórmerka framtak „Gefum íslensku séns“ sem hófst á Ísafirði fyrir nokkrum árum en hefur síðan breiðst nokkuð út. Í vetur var ákveðið að víkka starfið út og gera það formlega með stofnun sérstaks félags sem nær til landsins alls. Í lögum félagsins segir:
„Tilgangur félagsins er að auka vitund fólks um máltileinkun íslenskunnar og stuðla með því að inngildandi samfélagi og gefa öllum íbúum séns á að nota íslenskuna við sitt hæfi miðað við aðstæður hverju sinni. Jafnframt er lögð áhersla á að vekja athygli, einkum íslenskra móðurmálshafa, á mikilvægi framlags þeirra sem almannakennara með því að styðja við formlega íslenskukennslu og styðja þannig við íslenska máltileinkun.“
- Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að stuðla að auknum möguleikum fólks í notkun íslensku á sem víðtækastan og fjölbreyttastan hátt í samfélaginu.
- Félagið nær markmiðum sínum með því að halda viðburði sem gefa fólki tækifæri til að æfa sig í að tala íslensku.
- Félagið nær markmiðum sínum með vitundarvakningu sem kallar almenning til ábyrgðar að miðla tungumálinu til erlendra íbúa sem hafa ekki íslenskuna að móðurmáli.
- Félagið hyggst þróa og kynna markmið sín um land allt.
- Starfssvæðið er allt landið og möguleiki er á starfskjörnum í öllum landshlutum. Félagið tryggir lýðræðislega þátttöku félagsmanna hvaðanæva af landinu og hvetur til frumkvæðis og virkrar þátttöku.“
Nánari upplýsingar um félagið eru á heimasíðu þess, https://gefumislenskusens.is/, og einnig er hægt að fylgjast með starfseminni á Facebook, https://www.facebook.com/GEFUMISLENSKUSENS, og Instagram, https://www.instagram.com/gefumislenskusens/.
Þótt félagið hafi verið formlega stofnað í lok janúar er hægt að skrá sig sem stofnfélaga út þetta ár. Stjórnin hvetur öll þau sem hafa áhuga á stefnumálum félagsins til að skrá sig með því að greiða félagsgjaldið, 2.500 krónur, og senda staðfestingu á gis@gefumislenskusens.is.
Reikningur: 0133-26-021398
Kennitala: 650326-0830

+354-861-6417
eirikurr