Þetta er yfirleitt ekki vettvangur fyrir afmælisgreinar en í dag verður að gera undantekningu – Bubbi Morthens er sjötugur. Fáum á íslenskan meira að þakka í seinni tíð. En þegar Bubbi var að byrja feril sinn sat hann undir stöðugum árásum sjálfskipaðra eigenda íslenskunnar – hann talaði vitlaust, skrifaði vitlaust, sletti ensku, fór ekki eftir bragreglum, og svo framvegis. Eins og hann hefur sjálfur sagt „hafa menn gegnum tíðina notað tungumálið nánast sem valdatæki þeirra sem töluðu rétt mál og skrifuðu rétt og beitt því gegn þeim sem notuðu það ekki rétt eða gátu ekki skrifað rétt. Þeir voru settir á lúserabásinn og urðu niðursetningar íslenskrar tungu.“ Ýmsir hefðu guggnað í hans sporum og annaðhvort hætt allri textagerð eða flúið yfir í enskuna.
Það hefði verið óbætanlegt tjón fyrir íslenska dægurmenningu, íslenska þjóð og íslenskuna ef Bubbi hefði látið andstöðuna brjóta sig niður. En hann hélt sem betur fer sínu striki eins og Silja Aðalsteinsdóttir, sem alla tíð hefur staðið með honum, skrifar á Facebook í dag: „[M]ig langar til að þakka honum innilega fyrir að hafa haldið sig við íslenskuna – við kynnum ekki alla þessa texta nema vegna þess að þeir eru á íslensku og hann var sá sem bjargaði íslenskri tungu á þessu sviði, sviði dægurtónlistar.“ Undir þetta má sannarlega taka. Íslenskan hans Bubba er sú íslenska sem fólkið í landinu notar og það er ekki síst þess vegna sem hann hefur alla tíð náð svo vel til þjóðarinnar. Til hamingju með afmælið, Bubbi, og haltu áfram sem lengst!

+354-861-6417
eirikurr