Posted on

Málfarsfordómar eru óboðlegir

Í „Málspjalli“ varð í gær býsna dapurleg umræða af því tilefni að rithöfundur hafði sagt „þeim langar“ í viðtali um nýja bók sína. Málshefjandi sagði að þetta hefði valdið því að hún hefði engan áhuga á að lesa umrædda bók, og í umræðunni tóku margir þátttakendur í sama streng og lýstu andúð sinni á þessari málnotkun. Það vill reyndar svo til að ég er búinn að lesa bókina og get fullyrt að hún er sérlega vel skrifuð og í henni er ekki vottur af hinni illræmdu „þágufallssýki“. Það eru auðvitað ótrúlegir og óþolandi fordómar að dæma bók af einu orðalagi höfundar í viðtali, en lýsir vel þeirri sérkennilegu stöðu sem þessi málbreyting hefur í huga margra. Það er jafnvel eins og fólk sem talar þannig verði „óhreint“ eins og þetta dæmi sýnir.

Það er ljóst að þeim langar er a.m.k. hundrað ára gömul málbreyting sem er orðin eðlilegt mál verulegs hluta þjóðarinnar eins og rannsóknir sýna, þrátt fyrir að barist hafi verið hatrammlega gegn henni í skólum og fjölmiðlum meginhlutann af þessum hundrað árum. Það er líka ljóst að þetta er smávægileg breyting sem tekur til örfárra sagna og hefur engin áhrif á málkerfið í heild, og fjöldi hliðstæðra breytinga hefur orðið í málinu á undanförnum öldum án þess að fólk geri athugasemdir við þær – oftast án þess að fólk viti af þeim. Nægir að nefna sagnir eins og fjölga og fækka sem tóku nefnifallsfrumlag á nítjándu öld – prestarnir fjölguðu, iðjuleysingar fækkuðu. Nú er alltaf notað þágufall með þeim en aldrei amast við því – enda spillti það engu.

Einnig er ljóst að þeim langar og önnur hliðstæð dæmi er rétt mál samkvæmt viðurkenndum viðmiðum – „Rétt íslenskt mál er málnotkun sem samræmist (einhverri) íslenskri málvenju en rangt íslenskt mál samrýmist engri íslenskri málvenju“ segir í grein á Vísindavefnum. Það er enginn vafi á því að þeim langar er íslensk málvenja, málvenja mjög margra en vitanlega ekki allra, og hlýtur því að teljast rétt mál. Furðu margt fólk heldur sig samt enn við það að þessi málbreyting – sem var sjúkdómsvædd með hinu ógeðfellda heiti „þágufallssýki“ – sé röng, raunar einhver versta villa sem hægt sé að gera í máli. Fólk vill ekki viðurkenna að málið breytist, hefur alltaf verið að breytast og hlýtur að breytast – annars deyr það.

Eins og margoft hefur komið fram í þessum hópi var hann stofnaður til þess að efla jákvæða og uppbyggjandi umræðu um íslenskt mál. Umræðan í gær var dæmi um hið gagnstæða – neikvæða umræðu þar sem talað var niður til fólks og það dæmt eftir málfari og höfundur jafnvel afskrifaður vegna málnotkunar í viðtali. Slíkt á ekki að viðgangast og er í raun alveg óþolandi. Ég legg því til að þið sem hafið það viðhorf til málfars sem hér hefur verið lýst gangið úr þessum hópi – hann er greinilega ekki fyrir ykkur. En örvæntið ekki, það er annar vettvangur sem hentar ykkur betur – þessi umræða hefði sómt sér vel í „Málvöndunarþættinum“. Þar lifa málfarsfordómar og hneykslun á málfari almennings góðu lífi.