Í innleggi í „Málspjalli“ í fyrradag sagði: „Ó ó … var að hlusta á viðtal við rithöfund sem var að segja frá nýútkominni bók sinni og tvítók: Þeim langar … þeim langar. Nú langar „mér“ ekkert til að lesa þessa bók eftir þetta. Er kannski full viðkvæm fyrir þessu eða hvað?“ Viðbrögð létu ekki á sér standa: „Skil þig fullkomlega! Læsi ekki verk eftir þennan rithöfund!“; „Skil þig vel!“; „Heyrði þetta líka áðan og þótti sorglegt og óþægilegt – sérstaklega þegar hann endurtók þetta“; „Mér finnst þú ekkert of viðkvæm vegna þess“; „Þetta er alveg til að kippa sér upp við“; „Æi, mér finnst alltaf erfitt að hlusta á svona... ja, maður má víst ekki kalla það málvillur lengur“; „Að sjálfsögðu læsi ég aldrei bókstaf eftir þennan höfund. Nóg er nú samt“.
Þessi umræða sýndi að mörgum þykir ekkert athugavert við að gagnrýna málfar tiltekins fólks og tala niður til þess – þótt viðkomandi höfundur væri ekki nafngreindur í innlegginu voru þar nægar upplýsingar til að þátttakendur í umræðunni áttuðu sig strax á því um hvern væri að ræða. Það þykir ekki (lengur) við hæfi – sem betur fer – að gera lítið úr fólki vegna kyns, húðlitar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar, og ekki heldur vegna t.d. útlits, þroskaskerðingar eða fötlunar. Hins vegar viðgengst enn og þykir sjálfsagt að gera lítið úr fólki og hæðast að því vegna málfars, og þá allra helst ef fólki verður það á að nota svonefnda „þágufallssýki“. Nægir þar að minna á hvernig var gert grín að þáverandi menntamálaráðherra í áramótaskaupi síðast.
Fjölmörg lækuðu upphaflegu færsluna og viðbrögðin, þótt vissulega væru líka ýmis sem andmæltu þessu. Í umræðum um færslu sem ég skrifaði í gær af þessu tilefni, með fyrirsögninni „Málfarsfordómar eru óboðlegir“, sagði höfundur upphaflega innleggsins: „Ég myndi seint taka undir að ég væri haldin málfarsfordómum.“ Við sjáum sjaldnast bjálkann í eigin auga, en að missa löngun til að lesa bók vegna þess að í viðtali notaði höfundurinn eitt orð í þágufalli í stað þolfalls er skólabókardæmi um málfarsfordóma, eiginlega svo skýrt sem verða má. En vitanlega er ósanngjarnt að gera innleggshöfundinn einan ábyrgan – hann orðar bara þau skaðlegu viðhorf til móðurmálsins sem hafa verið viðtekin í íslenskri málfarsumræðu síðustu hundrað ár a.m.k.
Þessi viðhorf eru skaðleg vegna þess að þau hamla eðlilegri málþróun sem er nauðsynleg til að málið haldist lifandi. Með því að berjast gegn tilbrigðum sem eru útbreidd og jafnvel orðin eðlilegt mál verulegs hluta málnotenda, eins og það tilbrigði sem gengur undir hinu ógeðfellda heiti „þágufallssýki“, erum við að segja fólki sem er alið upp í íslensku málumhverfi að íslenskan þess sé röng – það kunni ekki íslensku. Þetta er auðvitað ekki til þess fallið að hvetja fólk til að nota málið. Það kom kannski ekki að sök áður þegar samkeppni var engin, en nú er íslenska í harðri samkeppni við enskuna. Ef við viljum að unga fólkið, og fólk sem hingað flyst, velji íslensku fram yfir ensku verðum við að sýna umburðarlyndi gagnvart tilbrigðum í máli.
En ég skil svo sem alveg fólk sem hneykslast inni í sér þegar það heyrir eða sér mér langar eða annað slíkt. Ég ólst sjálfur upp við þessi viðhorf og tileinkaði mér þau sem heilagan sannleik, eins og mín kynslóð og margar aðrar bæði áður og síðar, og fólk sem ég heyrði segja mér langar eða annað slíkt lækkaði umsvifalaust í áliti hjá mér. Það var ekki fyrr en ég var kominn vel áleiðis í háskólanámi í íslensku sem ég áttaði mig á því hversu rangt og skaðlegt þetta viðhorf er og hvernig það hefur verið notað og er notað enn, meðvitað og ómeðvitað, til að þagga niður í fólki, ekki síst þeim sem ekki voru komin af sæmilega stæðu og menntuðu fólki eða stóðu höllum fæti af öðrum ástæðum. Um þetta eru fjölmörg dæmi sem ég hef skrifað um.
Árið 1970 skrifaði Halldór Laxness fræga grein sem hét „Hernaðurinn gegn landinu“ og er oft talin marka upphaf nútíma náttúruverndar og umhverfisvitundar á Íslandi. Einstrengingsleg barátta gegn tilbrigðum í íslensku máli er í raun og veru hernaður gegn tungunni – það er verið að fæla fólk frá því að nota þá íslensku sem því er eiginleg, drepa áhuga fólks á að nota málið á frjóan og skapandi hátt, og þagga niður í því eða hrekja það þess í faðm enskunnar. Því heiti ég á þau sem hneykslast á „þágufallssýki“ og öðrum tilbrigðum í máli en vilja veg íslenskunnar sem mestan að halda hneyksluninni fyrir sig. „Þágufallssýkin“ skaðar málið ekki neitt en barátta gegn henni veldur því ómældum skaða. Því verður að linna – stöðvum hernaðinn gegn tungunni.

+354-861-6417
eirikurr