Posted on

Sagan rekin

Þessa dagana er hvað eftir annað spiluð í Ríkissjónvarpinu kynning á þáttum þar sem „saga íslenskrar hönnunar er rekin“ eins og segir í kynningunni. Á það hefur verið bent a.m.k. tvisvar í „Málvöndunarþættinum“ á Facebook að þarna ætti að vera rakin í stað rekin – þetta er veika sögnin rekja, ekki sterka sögnin reka. Beyging þessara sagna fellur saman í nútíð eintölu – myndirnar (ég) rek, (þú) rekur, (hann/hún/hán) rekur í framsöguhætti og (þótt ég) reki, (þú) rekir, (hann/hún/hán) reki í viðtengingarhætti eru sameiginlegar báðum sögnum. Það er ekki sama sögnin í lögmaðurinn rekur málið (fyrir rétti) og lögmaðurinn rekur málavexti eins og sést í þátíðinni – lögmaðurinn rak málið (fyrir rétti) og lögmaðurinn rakti málavexti.

Vegna þess að myndir framsöguháttar eintölu í nútíð eru yfirleitt langalgengustu beygingarmyndir sagna er ekki undarlegt að samfall sagna í þeim myndum leiði til frekari blöndunar milli sagnanna og það virðist hafa gerst í þessum sögnum. Sagnir sem beygjast eins og rekja, eins og hrekja, klekja, vekja, þekja, hafa alltaf a í lýsingarhætti þátíðar, hrakinn, klakinn, vakinn, þakinn, og ekki virðist gæta neinnar tilhneigingar til að breyta því í e – myndir eins og *hrekinn, *klekinn, *vekinn, *þekinn koma varla fyrir. Í Risamálheildinni má vissulega finna dæmi um hrekinn („ég var hrekin úr flokknum“) og vekinn („einnig er vekin athygli á því“) en þau eru svo fá að eðlilegt er að líta á þau sem einhvers konar villur.

Af þessum fjórum sögnum sem hafa sömu stofngerð og beygjast eins er það eingöngu rekja sem fellur að hluta saman við aðra sögn í beygingu. Því liggur beint við að skýra fjölda dæma um lýsingarháttinn rekinn af rekja með áhrifum frá reka sem hefur þennan lýsingarhátt. Vegna tíðni lýsingarháttarmyndanna er erfitt að leita rafrænt að dæmum en ég hef þó fundið slæðing af dæmum allt frá því snemma á tuttugustu öld. Í Heimskringlu 1913 segir: „skal hér sú saga rekin að nokkru.“ Í Morgunblaðinu 1920 segir: „Hansen hafði rekið sögu málsins.“ Á seinustu áratugum hefur dæmum af þessu tagi farið fjölgandi og má finna töluvert af þeim í Risamálheildinni, ekki síður úr formlegu málsniði en af samfélagsmiðlum.

Áhrif af þessu tagi eru ekki einsdæmi. Annað tilvik þar sem lýsingarháttur þátíðar (eða sagnbót) tveggja sagna fellur saman má finna í sögnunum bíða og biðja. Sagnir með hljóðskiptin í – ei – i, eins og kvíða, ríða, sníða, svíða,  hafa i í lýsingarhætti þátíðar – kviðið, riðið, sniðið, sviðið. En bíða fær ekki myndina biðið eins og búast mætti við, heldur beðið (þótt biðið bregði stöku sinnum fyrir) – eins og sögnin biðja. Ekki er ósennilegt að bíða hafi fengið lýsingarháttinn að láni frá biðja (þótt önnur skýring hafi einnig verið nefnd). Hvað sem því líður er ljóst að samfall lýsingarhátta á sér fordæmi í málinu og veldur ekki sérstökum vandræðum eða misskilningi, en að svo stöddu er samt æskilegt að halda sig við málhefð og greina milli rakinn og rekinn.