Posted on

Ótextað viðtal í Kastljósi

Í Kastljósi Ríkissjónvarpsins var áðan sýnt alllangt viðtal við Andreas Schleicher, yfirmann menntamála hjá OECD, þar sem PISA-prófin voru til umræðu, meðal annars útkoma íslenskra ungmenna á prófunum og möguleg viðbrögð við henni. Efni viðtalsins var því mjög áhugavert, en það var á ensku og sýnt ótextað – væntanlega vegna einhverra tæknivandræða. Umsjónarmaður Kastljóss baðst vissulega afsökunar á textaleysinu eftir á og lofaði að viðtalið yrði textað á netinu þegar þar að kæmi. Vitanlega getur tæknin alltaf brugðist og ekkert við því að segja – en mér finnst viðbrögðin við textaleysinu óviðunandi og Ríkisútvarpinu ekki sæmandi. Þótt efni viðtalsins væri mikilvægt var það ekki þess eðlis að það mætti ekki bíða.

Um leið og í ljós kom að ekki var hægt að sýna viðtalið með íslenskum texta átti vitanlega að stöðva útsendingu þess þangað til búið var að komast fyrir vandann – og ef það hefði ekki tekist á stuttum tíma hefði átt að bíða með viðtalið og senda það út síðar. Það er ekki hægt að bjóða íslenskum sjónvarpsáhorfendum ótextað viðtal á ensku um mikilvægt efni sem búast má við að mjög mörgum þyki áhugavert. Þetta er líka skýrt brot á fyrstu málsgrein sjöttu greinar laga um Ríkisútvarpið þar sem segir: „Efni á erlendu máli, sem sýnt er í sjónvarpsdagskrá Ríkisútvarpsins, skal fylgja íslenskt tal, íslensk talsetning eða texti á íslensku eftir því sem við á hverju sinni.“ Það nægir ekki að texti komi einhvern tíma seinna.

Það að haldið skyldi áfram að sýna viðtalið ótextað í stað þess að stöðva útsendinguna sýnir vel þá stöðu sem enskan er komin í á Íslandi sem eins konar óopinber þjóðtunga. Það er gert ráð fyrir og ætlast til að fólk skilji ensku og stjórnendum útsendingar þykir því allt í lagi að halda áfram að sýna viðtalið þótt íslenskan texta vanti. Ég er handviss um að ef viðtalið hefði verið á einhverju öðru erlendu tungumáli, svo sem þýsku eða frönsku, hefði útsending verið stöðvuð þegar í stað. En þetta á ekki að vera svona – allra síst í Ríkissjónvarpinu. Við eigum rétt á að allt efni sé textað, líka efni á ensku, og það er dónaskapur við almenning og lítilsvirðing við íslenskuna að sýna ótextað efni. Við eigum að krefjast þess að lög séu virt.