Posted on

Dekk og felgur

Nýlega fór ég með bílinn minn í dekkjaskipti og fór þá að velta fyrir mér helstu orðum sem notuð eru í tengslum við þá aðgerð. Orðið dekk kom inn í málið á átjándu öld, úr dæk í dönsku, og er skylt nafnorðinu þak og sögninni þekja. Það hefur ýmsar merkingar samkvæmt Íslenskri orðsifjabók: 'grasbekkur framan við bæjarþil eða smágrashjalli við hús; grasræma utan við vegarbrún; þilfar á skipi; skjólþak eða hlíf; hjólbarði’. Elsta dæmi um síðastnefndu merkinguna er í Þjóðólfi 1905: „Sömuleiðis dekk, slöngur o.m.m.fl.“ Þar og í öðrum elstu dæmum um þessa merkingu er vísað til reiðhjóladekkja en elsta dæmi um að vísað sé til dekkja á bíl er í Morgunblaðinu 1915: „verður þar gert við dekk og slöngur af bifreiðum og hjólhestum.“

Í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls er þágufall fleirtölu eingöngu haft dekkjum og eignarfall fleirtölu dekkja, en í elstu dæmum er beyging orðsins j-laus. Í Morgunblaðinu 1916 segir: „Miklar birgðir af dekkum og slöngum með 15 mánaða ábyrgð.“ Þágufall fleirtölu með j sést ekki fyrr en í Morgunblaðinu 1927: „reynið þessa ágætu tegund, næst er þjer þurfið á dekkjum að halda.“ Elsta dæmi um eignarfall fleirtölu er í Stormi 1928: „1928 var ekki eftirbátur undanfarinna ára um stórkostlega aukningu á sölu Good-year bíladekka.“ Eignarfall fleirtölu með j sést ekki fyrr en í Tímanum 1951: „Bifreiðin er G.M.C. 10 dekkja.“ Samkvæmt uppruna ættu þessi föll ekki að hafa j en það hefur komið inn fyrir áhrif frá öðrum orðum.

Af nafnorðinu dekk hefur verið mynduð sögnin dekkja í merkingunni 'setja (vetrar)dekk undir' en hún er sárasjaldgæf og finnst ekki í orðabókum. Í Vísi 1971 segir: „greinilegt að fjöldinn hefur dregið það í lengstu lög að dekkja bíla sína fyrir veturinn.“ Í Morgunblaðinu 2018 segir: „Láttu fagmenn dekkja bílinn.“ Lýsingarorðið dekkjaður sem að forminu til lítur út eins og lýsingarháttur þátíðar af dekkja og virðist eingöngu koma fyrir með atviksorði, vel/illa dekkjaður í merkingunni 'á góðum/vondum dekkjum', er hins vegar töluvert algengara þótt það sé ekki að finna í orðabókum frekar en sögnina. Það er þó ekki nýtt – elsta dæmi sem ég finn er í Morgunblaðinu 1943: „Bíllinn er með nýrri vjel og sæmilega dekkjaður.“

Málhreinsunarstefnan var mjög sterk á fyrsta hluta tuttugustu aldar og ekki við öðru að búast en reynt væri að smíða alíslenskt orð í staðinn fyrir tökuorði eins og dekk. Í lista um „Orð úr viðskiftamáli“ sem Orðanefnd Verkfræðingafjelagsins hafði tekið saman og birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1925 var í stað orðsins dekk stungið upp á orðunum barði, bílbarði og hjólbarði. Orðið barði eitt og sér getur merkt 'skjöldur', 'hlíf' eða eitthvað slíkt, sbr. barð sem getur merkt 'skegg', og er það trúlega hugsunin á bak við þessi orð. Af þessum orðum er hjólbarði það eina sem hefur lifað – fáein dæmi má finna um bílbarða fram á fimmta áratuginn. Orðið barði er þó stundum notað sem stytting, og til er dekkjaverkstæði sem heitir Barðinn.

En til að dekk nýtist undir bíl þarf það að vera á felgu. Orðið felga er líka tökuorð úr dönsku, fælg. Elsta dæmi um það er í auglýsingu um „Nýkomnar bifreiðavörur“ í Vísi 1920 þar sem m.a. eru taldir upp „hjólhringir (felgur)“. Elsta dæmi um orðið hjólhringur er reyndar frá 1879 en það virðist hafa verið notað í ýmsum merkingum sem ekki er alltaf gott að átta sig á. Stundum virðist það einfaldlega merkja 'hjól' (t.d. í rokk) en alloft merkir það 'dekk', eins og í Morgunblaðinu 1929: „En hjólhringur sprakk á lögreglubílnum.“ Það er ekki að sjá að orðið hafi nokkurn tíma verið notað að ráði í merkingunni ‚felga‘ og raunar sé ég ekki að nokkurt nýyrði fyrir felgu hafi komið fram – og hafi  það verið smíðað hefur það a.m.k. ekki náð fótfestu.

Ef dekk springur þarf að skipta um dekk, en þegar skipt er um dekk af annarri ástæðu, einkum þegar skipt er milli sumar- og vetrardekkja, er oftast talað um að umfelga. Sú sögn er ekki nema fimmtíu ára gömul – í Þjóðviljanum 1975 segir: „Þá flykkjast allir að og þurfa að láta umfelga í ofboði.“ Nafnorðið umfelgun kemur einnig fyrir í sömu frétt: „umfelgun á dekki, þ.e. að færa sumardekkin af og setja snjódekkin á.“ Þarna hefur þótt ástæða til að skýra orðið umfelgun. Sögnin felga ein og sér kemur hins vegar varla fyrir, nema í auglýsingum frá áttunda og níunda áratugnum – „Felgum – affelgum – neglum“. Sögnin affelga og nafnorðið affelgun eru annars helst notuð um óhöpp – „Einnig er hætta á að affelga í hliðarhalla“ segir í Degi 1998.