Posted on

Stjórar, stýrur og stýri

Í mbl.is í dag er áhugaverð frétt um orðanotkun í starfsauglýsingu Veitna. Þar var fyrst auglýst eftir „samskiptastýru/-stjóra/-stýri“ eins og fyrirtækið sagðist áður hafa gert í starfsauglýsingum sínum. En eftir að hafa fengið álit frá kvári og trans manni sem taldi að „[e]kki væri eftirspurn eftir slíku innan hinsegin samfélagsins og því ekki þörf á að breyta titli eftir kyni, heldur væri nóg að nota aðeins orðið stjóri“ var ákveðið að taka -stýri út. Um þetta voru þó skiptar skoðanir og annar álitsgjafi sem leitað var til vildi „meina að komin væri hefð fyrir svokölluðu kynhlutlausu máli í starfsauglýsingum“, en niðurstaðan var sú að auglýsingunni var ekki breytt í annað sinn og í lokagerð hennar stendur því „Veitur leita að samskiptastýru/-stjóra“.

Þessi vandræðagangur með auglýsinguna sýnir í hnotskurn þann vanda sem kynjahalli íslenskra starfsheita getur skapað í þjóðfélagi þar sem hvers kyns mismunun kynjanna er litin hornauga. Langflest íslensk starfsheiti eru karlkyns og fyrir því eru væntanlega tvær samverkandi ástæður. Annars vegar voru það framan af einkum eða eingöngu karlmenn sem gegndu fjölmörgum störfum og eðlilegt að starfsheitin tækju mið af því og væru karlkyns, en hins vegar er málfræðilegt karlkyn frá fornu fari og af sögulegum ástæðum „hlutlaust“ kyn, notað í almennri vísun. Málfræðilegt karlkyn nafnorðs er því í raun formsatriði sem hefur frá málfræðilegu sjónarmiði enga tengingu við kyn þess fólks sem orðið er notað um.

En það breytir því ekki að í huga margra málnotenda eru tengsl þarna á milli, sem koma m.a. fram í því að mörgum finnst óeðlilegt eða ankannanlegt að nota karlkynsorð í vísun til konu eða kvárs. Vissulega er deilt um rót þessarar tilfinningar – hvort um sé að ræða raunverulega tilfinningu sem eigi sér rætur í málkennd fólks, eða hvort ræturnar séu kynjapólitískar en komi málkennd ekki við. Um þetta er útilokað að fullyrða nokkuð án rannsókna sem ekki liggja fyrir, en ég er samt viss um að í a.m.k. sumum tilvikum er þetta raunveruleg og einlæg tilfinning sem er hluti af málkennd fólks. Þessi tilfinning, hverjar sem rætur hennar kunna að vera, hefur leitt til þess að ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til að draga úr karllægni starfsheita.

Helsta aðferðin sem notuð hefur verið til þess er sú að breyta seinni lið orðanna – setja t.d. -kona í stað -maður (þingkona, knattspyrnukona, stjórnarkona), -stýra í stað -stjóri (framkvæmdastýra, samskiptastýra) o.s.frv. Þetta er þó ýmsum vandkvæðum bundið – ekki er alltaf hægt að finna kvenkyns samsvaranir við karlkyns seinni lið starfsheita. Mjög mörg starfsheiti enda t.d. á viðskeytum eins og -andi, -ari, -ingur eða -uður og þótt í sjálfu sér væri auðvelt að gefa þeim kvenkynsendingu og breyta þeim í -anda, -ara, -inga og -uða virðist það ekki hafa verið gert – orð eins og *stjórnanda, *iðnrekanda, *kennara, *hárgreiðslumeistara, *hjúkrunarfræðinga, *verkfræðinga, *hönnuða o.s.frv. hljóma mjög óeðlilega og eru fráleit.

En eigi einnig að taka tillit til þeirra sem skilgreina sig utan kynjatvíhyggjunnar dugir ekki að búa til kvenkynsmynd starfsheitanna – það þarf einnig að hafa hvorugkynsmynd og myndin -stýri í umræddri auglýsingu hefur átt að þjóna þeim tilgangi. Það er þó oft mun erfiðara að búa til hvorugkynsmyndir starfsheita en kvenkynsmyndir, m.a. vegna þess að hvorugkynið á sér enga endingu sem einkenni það (eins og -ur og -i eru dæmigerðar karlkynsendingar og -a dæmigerð kvenkynsending). Og þótt kvenkynsorðið stýra sé eðlileg samsvörun við stjóri gegnir öðru máli um hvorugkynsorðið stýri vegna þess að það orð á sér langa hefð í málinu um hlut, og það er almennt ekki heppilegt að taka orð um hluti og fara að nota þau um fólk.

Þar að auki held ég að kyngreind starfsheiti séu ekki æskileg og geti raunar unnið gegn markmiði sínu vegna þess að þau bjóða heim þeirri hugmynd eða tilfinningu eða þróun að verksvið – eða valdsvið – starfa sé eða verði mismunandi eftir kyni þeirra sem gegna þeim. Er framkvæmdastýra valdaminni eða tekið minna mark á henni en framkvæmdastjóra? Er þingkona áhrifaminni en þingmaður? O.s.frv. Ég veit þetta ekki, en finnst það ekki útilokað. Þótt ég skilji vel og styðji af heilum hug hugmyndina á bak við það að draga úr kynjahalla íslenskra starfsheita held ég sem sagt að meðan ekki finnast góð hvorugkyns starfsheiti í stað hefðbundinna karlkyns starfsheita sé skást að halda sig við þau hefðbundnu.

En þá skiptir máli að við séum meðvituð um að kyn starfsheitisins getur haft ómeðvituð áhrif á viðhorf fólks til starfsins og eðlis þess. Um þetta hef ég skrifað fjölda pistla og hef t.d. sýnt fram á að fólk notar þjóðaheiti – sem öll eru karlkyns – miklu síður um konur en karla. Þegar rætt er um konur er frekar notað lýsingarorð og nafnorð, t.d. danska konan Pernille, en þjóðaheitið, Daninn Pernille. Ég hef líka sýnt að sjálfgefinn skilningur á starfsheitum sem enda á -maður, eins og ökumaður, virðist oft sá að þau vísi til karlmanna. Við breytum þjóðaheitum eða starfsheitum ekki svo glatt, og mér dettur ekki í hug að tala fyrir því. En mér finnst samt mikilvægt að við áttum okkur á þessu og höfum það í huga.