Fyrir réttum fjórum árum, um miðjan október 2022, skrifaði ég harðorðan pistil í „Málspjall“ um þá hneisu að í Leifsstöð höfðu öll skilti og tilkynningar ensku á undan íslensku. Þar var nefnt að stjórn Íslenskrar málnefndar hefði skrifað Isavia um málið bæði 2016 og 2017, en engin svör fengið. Í framhaldi af umræðum um þetta, m.a. hvatningu þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra, samþykkti stjórn Isavia „að íslenska verði framvegis í forgrunni tungumála við endurnýjun merkingakerfis í flugstöð Leifs Eiríkssonar“. Næst fréttist af málinu á degi íslenskrar tungu 2023 – í mbl.is sagði: „Þá hefur stjórn Isavia hefur ákveðið að íslenskan verði á undan öðrum tungumálum á öllum leiðbeiningarskiltum á flugvellinum fyrir árslok 2024.“
En sú tímaáætlun stóðst ekki og vorið 2025 sagði upplýsingafulltrúi Isavia í viðtali við mbl.is: „„Þetta verkefni er í fullum gangi. Það hefur tekið lengri tíma en við áætluðum þar sem umfangið er töluvert meira en gert var ráð fyrir. [...] „Markmiðið er að verkefninu ljúki fyrir vorið 2026.“ Nú er vorið 2026 liðið og komið haust, en það er alveg ljóst að því fer fjarri að þessu verkefni sé lokið. Ég var í Leifsstöð á mánudaginn var. Ég fór vissulega ekki um alla bygginguna en á öllum þeim skiltum sem ég sá var enskan enn á undan íslenskunni – annaðhvort fyrir ofan eða framar í línu – og/eða með stærra eða breiðara letri. Ég get ekki fullyrt að þannig sé þetta alls staðar í byggingunni en svona var það á þeim stöðum sem allir farþegar fara um.
Isavia heldur þannig áfram að vera sér til háborinnar skammar – og nú bætast margsvikin loforð ofan á skömmina fyrir að gera ensku hærra undir höfði en íslensku. Hér er rétt að benda á að verði nýtt frumvarp Snorra Mássonar og annarra þingmanna Miðflokksins að lögum verður þetta beinlínis ólöglegt – þar segir nefnilega að sé erlendur texti látinn fylgja íslenskum skuli „íslenskur texti auglýsingar vera mest áberandi, svo sem efst á blaði, feitletraður eða í stærra letri en texti á öðrum málum“. Það er auðvitað fullkomlega óþolandi að fyrirtæki í eigu ríkisins skuli sýna þjóðtungunni slíka lítilsvirðingu – og komast upp með það að margbrjóta eigin loforð um að bæta ráð sitt. Isavia skuldar þjóðinni skýringu og afsökunarbeiðni vegna þessa.

+354-861-6417
eirikurr