Í frétt í Vísi í gær stóð „Finnbjörn Hermannsson, fráfarandi forseti ASÍ, kvaddi sér til máls á þinginu í umræðunum um tillöguna.“ Vakin var athygli á þessu í „Málvöndunarþættinum“ og sagt „Hér er tveimur orðtökum slegið saman sýnist mér“ – þ.e. kvaddi sér hljóðs og tók til máls. Forsetningin til sýnir að sú ályktun er örugglega rétt, en öðru máli myndi gegna ef aðeins hefði staðið þarna kvaddi sér máls. Það orðasamband er vissulega ekki algengt en kemur þó fyrir u.þ.b. 25 sinnum á tímarit.is. Tilbrigðið biðja/beiða sér máls kemur reyndar einnig fyrir og er eldra –í Öldinni 1893 segir: „Magnús Pálsson frá Wpg. bað sér máls til að gefa skýring.“ Merkingin er þarna augljóslega svipuð og í kveðja sér hljóðs, þ.e. 'biðja um orðið'.
Elsta dæmi sem ég finn um kveðja sér máls er í Lögbergi 1927: „Svo kvaddi Bartja sér máls.“ Í Morgunblaðinu 1953 segir: „Vill ekki einhver kveðja sér máls?“ Í Tímanum 1955 segir: „Í sambandi við tillögu þeirra Bernharðs og Gísla, kvaddi Gísli Jónsson sér máls.“ Í Vísi 1964 segir: „Þá kvaddi sér máls utan dagskrár Skúli Guðmundsson.“ Í Mánudagsblaðinu 1967 segir: „Þar kveður Baldvin Einar sér máls um frelsismálin fyrstur manna.“ Í Morgunblaðinu 1977 segir: „Það var borgarfulltrúi Alfreð Þorsteinsson (F) sem fyrstur kvaddi sér máls.“ Í DV 1984 segir: „Síðan kvaddi sér máls Rögnvaldur Ólafsson framkvæmdastjóri.“ Í Morgunblaðinu 1991 segir: „Og Hjörleifur Guttormsson [...] kvaddi sér máls um þingsköp.“
Þótt dæmin um kveðja sér máls séu vissulega ekki mörg eru þau fleiri en svo að beint liggi við að afgreiða þau sem villur eða samslátt orðasambanda. Sögnin kveðja getur merkt 'biðja, krefjast, heimta', og þótt sambandið kveðja sér hljóðs merki bókstaflega 'biðja um þögn' eins og segir í Íslenskri nútímamálsorðabók er yfirfærð merking þess í raun 'biðja um orðið', 'taka til máls' eins og það er skýrt í Íslenskri orðabók. Það er því ekkert órökrétt við að nota sambandið kveðja sér máls í merkingunni 'biðja um að fá að mæla', þ.e. 'biðja um orðið' – það er góð og gild íslenska sem engin ástæða væri til að amast við þótt það breiddist út. Hins vegar er kveðja sér til máls eins og í áðurnefndri frétt augljós villa sem sjálfsagt er að leiðrétta.

+354-861-6417
eirikurr