Posted on

Að flýja á fótum

Í fyrirsögn í Vísi í gær segir: „Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför“ og í fréttinni sjálfri segir: „Ökumennirnir reyndu báðir að flýja á fótum eftir að hafa stöðvað bíla sína.“ Eins og vakin var athygli á í „Málvöndunarþættinum“ er þetta vissulega óvenjulegt orðalag – hefðbundnari íslenska væri flýja á hlaupum. Stundum er eintalan á fæti notuð í sömu merkingu, eins og í fyrirsögninni „Keyrði ölvaður aftan á strætó og stakk af á fæti“ í Fréttablaðinu 2022. Um það samband skrifaði ég á sínum tíma og sýndi að þrátt fyrir að það minni á on foot á ensku er það góð og gild íslenska og kemur fyrir þegar í fornu máli. En fleirtalan á fótum er hins vegar sjaldgæf í þessari merkingu þótt fáein dæmi megi finna um hana frá seinustu árum.

Á Hugi.is 2007 segir: „Hvers á ég að gjalda sem ferðast alltaf á fótum?“ Í Morgunblaðinu 2001 segir: „Að vísu er líklega ekki langt í að svo verði ef [...] menn hætti alveg að geta ferðast á fótum milli húsa.“ Í DV 2008 segir: „Flúði maðurinn á fótum í felur.“ Í Morgunblaðinu 2008 segir: „Þegar ferðast var á fótum, eigin eða hestsins, mótuðust göturnar af sjálfu sér.“ Í DV 2009 segir: „Hann reyndi að flýja lögregluna á fótum.“ Í Vísi 2022 segir: „Þau komust til Spánar með því að fara yfir Sahara eyðimörkina á fótum.“ Í Fréttablaðinu 2023 segir: „Hann yfirgaf bíl sinn á flugbrautinni og reyndi að flýja á fótum.“ Í Mannlífi 2023 segir: „Samkvæmt yfirvöldum byrjuðu átökin er Nichols reyndi að flýja á fótum af vettvangi.“

Þessi dæmi eru þó svo fá að því fer fjarri að sambandið á fótum hafi öðlast hefð í þessari merkingu – enn sem komið er. En það þarf ekki endilega að þýða að ástæða sé til að amast við notkun þess. Notkun fóta í fleirtölu í flýja/fara/ferðast á fótum er alveg hliðstæð notkuninni í vel þekktum samböndum eins og taka til fótanna í merkingunni 'forða sér á hlaupum' og eiga fótum fjör að launa í merkingunni 'þurfa að flýta sér þaðan á hlaupum'. Vissulega er ekki óhugsandi að notkun sambandsins í íslensku sé undir einhverjum áhrifum frá on foot í ensku, en það er ekki nægileg ástæða til að hafna því. Sambandið (ferðast) á fótum í merkingunni '(ferðast) fótgangandi, hlaupandi' er eðlileg og rökleg nýsköpun sem ástæða er til að taka vel.