Posted on

Þær hylja andlit sitt – eða andlit sín

Um daginn var ég að lesa Alþýðubókina eftir Halldór Laxness frá 1930 og rakst þar á setninguna „Þessir sömu menn ættu að byrgja andlit sín“. Þá rifjaðist upp fyrir mér að þetta orðalag var fordæmt í ábendingunum Gætum tungunnar sem „Áhugasamtök um íslenskt mál“ (Helgi Hálfdanarson) birtu í blöðum upp úr 1980 og margar í samnefndu kveri 1984. Þar segir: „Sagt var: Konur í Íran hylja andlit sín með blæjum. Þetta er erlend setningargerð. Rétt væri: Konur í Íran hylja andlitið með hlæju. (Nema hver kona hafi fleiri en eitt andlit.)“ Eins og margt annað úr Gætum tungunnar endurómar þetta í vægari mynd í Málfarsbankanum: „Betur fer á að segja konur hylja andlit sitt en „konur hylja andlit sín“ (sbr. hylja ásjónu sína).“

Nú er það auðvitað ekki svo að „hver kona hafi fleiri en eitt andlit“ og þess vegna má vel halda því fram að eintalan, konurnar hylja andlitið/andlit sitt, sé rökrétt þarna. En séu konurnar fleiri en ein eru andlitin það auðvitað líka, og fleirtalan, konurnar hylja andlit sín, er því fullkomlega rökrétt líka. Þetta snýst bara um það við hvað er miðað og engin leið að halda því fram að annað orðalagið sé rökréttara en hitt þóttt einhverjum geti vitanlega fundist annað smekklegra en hitt eins og vísað er til í Málfarsbankanum, án þess að fyrir því séu færð rök. Hins vegar má auðvitað hugsa sér að taka annað orðalagið fram yfir hitt á grundvelli málhefðar, og til hennar er einmitt vísað í Gætum tungunnar með staðhæfingunni „Þetta er erlend setningargerð“.

Það eru hins vegar engar forsendur fyrir þessari staðhæfingu. Í Sjö sofenda sögu, handriti frá fyrsta hluta fjórtándu aldar, segir: „fólust þeir og huldu andlit sín“. Í sama handriti er líka dæmi um eintöluna: „engi var dauðalitur á andliti þeirra.“ Í Guðbrandsbiblíu frá 1584 eru mörg dæmi um fleirtöluna andlit sín. Í Fyrstu Mósebók segir: „Og þeir sneru sínum andlitum þar frá so að þeir sæju ei þeirra föðurs blygðan.“ Í Jesaja segir: „Með tveimur huldu þeir sín andlit og með.“ Í Esekíel segir: „snúið yðar andlitum í burt frá öllum yðar svívirðingum“. En einnig eru dæmi um andlit í eintölu þótt vísað sé til fleiri en eins. Í Bréfi Jeremía segir: „Þau eru svört í andlitinu af reyknum í húsinu.“ Í Jesaja segir: „Drottinn mun afþurrka tárin af allra andliti.“

Bæði Sjö sofenda saga og Guðbrandsbiblía eru vissulega þýðingar og það má svo sem vel vera að fleirtalan sé þarna ættuð úr forritinu og því „erlend setningargerð“ að uppruna. En hún hefur þá a.m.k. tíðkast í íslensku í sjö hundruð ár og hlýtur því að vera orðin íslensk fyrir löngu – um andlit sín eru yfir 700 dæmi á tímarit.is allt frá miðri nítjándu öld. Tilvísun Málfarsbankans í eintöluna hylja ásjónu sína á væntanlega að vera rök fyrir eintölu í hylja andlit sín, en fjölmörg gömul dæmi eru til um fleirtöluna ásjónur í sambærilegum setningum, t.d. í Guðbrandsbiblíu. Í Opinberunarbók Jóhannesar segir: „Og þeir [...] féllu fram á sínar ásjónur.“ Í Annarri Makkabeabók segir: „Þá er þetta var allt búið féllu þeir fram á sínar ásjónur fyrir Drottni.“

Annað hliðstætt dæmi úr Gætum tungunnar er: „Sagt var: Þeir hristu höfuðin. Þetta er erlend setningagerð. Rétt væri: Þeir hristu höfuðið. (Hið fyrra gæti átt við þríhöfðaða þursa.)“ Eins og í fyrra dæminu er þetta tekið upp í mildari mynd í Málfarsbankanum: „Það fer betur á að segja þeir hristu höfuðið en „þeir hristu höfuðin“.“ Gísli Jónsson nefndi hristu höfuðin sem dæmi um „fleirtölupestina“ í Morgunblaðinu 1996. En hér gildir það sama og sagt var um andlit – hvort tveggja er rökrétt, eftir því við hvað er miðað. Fleirtalan kemur fyrir í fornu máli – í Sturlungu segir: „Það er þeim nú ráð, er hæst báru höfuðin á Hellu-fundi.“ Í 38. Passíusálmi Hallgríms Péturssonar segir: „hristu með háðung höfuðin“ – borið fram höfuðen, rímar við senn.

Fleirtalan er mjög algeng í þessum samböndum og hvorki hægt að nota röklegt samhengi né málhefð til að gera upp á milli hennar og eintölunnar – hvort tveggja er rökrétt og í samræmi við margra alda hefð. Það er ekkert athugavert við fleirtöluna en andstaða við hana er dæmi um kreddu sem hefur einhvern veginn orðið hluti af viðteknum hugmyndum um „rétt“ og „rangt“, „gott“ og „vont“, án þess að eiga sér nokkra stoð. Það er ekki einsdæmi að smekkur eða sérviska eða misskilningur áhrifamikilla manna í málfarsefnum, sem jafnvel gengur þvert gegn almennri málnotkun, verði að viðteknum sannindum sem hver étur upp eftir öðrum án þess að nokkurn tíma sé haft fyrir því að grafast fyrir um forsendurnar eða draga þær í efa. Það er ekki heppilegt.