Posted on

Leyfum alls konar íslensku að blómstra

„Mikill fjöldi málvillna hefur smám saman festzt í íslenzkri tungu, svo að fáir vita, að um málvillur er að ræða“. Svona hófst erindi sem Magnús Finnbogason, íslenskukennari við Menntaskólann í Reykjavík, flutti í útvarpið fyrir rúmum sjötíu árum, haustið 1953. Þetta er dæmigert fyrir það viðhorf til tilbrigða í máli sem hér var ráðandi mestalla síðustu öld og að einhverju leyti enn, og byggist á þeirri hugmynd að „rétt mál“ sé föst og óumbreytanleg stærð og í hverju tilviki sé aðeins eitt tilbrigði rétt en önnur þá röng. Það er þá verkefni málfræðinga og annars áhugafólks um vandaða íslensku að finna og draga fram þetta rétta tilbrigði, og eftir atvikum að fá málnotendur til að nota það en hafna öðrum tilbrigðum.

Í umræddu erindi Magnúsar eru taldir upp margir tugir „málvillna“ sem flestar hverjar eru venjuleg íslenska og hafa verið það lengi. Meðal þeirra má nefna vel / illa liðinn – í staðinn á að segja vel / illa þokkaður / kynntur / látinn; í mörgum tilfellum – í staðinn á að segja oft, oftlega; þýðingarmikill – í staðinn á að segja mikilvægur, mikilsverður; bera vott um – í staðinn á að segja bera vitni um; mögulegur – í staðinn á að segja gerlegur, kleifur; til að byrja með – í staðinn á að segja í fyrstu, í upphafi; vera mættur – í staðinn á að segja vera staddur, viðstaddur; ábyggilegur – í staðinn á að segja áreiðanlegur; vinnur á skrifstofu, liggur á sjúkrahúsi, fer á bíó; í staðinn á að segja vinnur í skrifstofu, liggur í sjúkrahúsi, fer í bíó; og svo mætti lengi telja.

Samkvæmt setningunni „svo að fáir vita, að um málvillur er að ræða“ halda þessar „málvillur“ áfram að vera „málvillur“ þrátt fyrir að þær séu fyrir löngu, stundum jafnvel fyrir nokkrum öldum, orðnar eðlilegt mál meginþorra málnotenda. Sé þessu fylgt bókstaflega þýðir það í raun að málið getur ekki breyst, eins og ágætur málvöndunarmaður sagði einu sinni: „Þjóðlagið breytist ekki neitt þó að einstaka maður syngi falskt. Það heldur áfram að vera sama lagið.“ Með þessu viðhorfi erum við að fara með íslenskuna sem safngrip en ekki lifandi mál. Safngripir eru ágætir til síns brúks – til að hafa á söfnum. En það þýðir ekki að þeir henti óbreyttir öldum saman til notkunar í nútíma samfélagi. Það gerir íslenskan ekki heldur.

Það viðhorf að íslenskan haldist óbreytt hvernig sem hún er töluð, jafnvel þótt meginþorri málnotenda tali öðruvísi, er stórhættulegt fyrir tungumálið. Það leiðir til þess að sífellt er verið að leiðrétta fólk, segja því að það tali vitlaust, kunni ekki móðurmál sitt. Það er niðurdrepandi og sannarlega ekki til þess fallið að efla áhuga fólks á að nota íslensku á öllum sviðum. Rétt eins og húsakostur okkar og hvers kyns áhöld og verkmenning hefur þróast til að þjóna þörfum samfélagsins á hverjum tíma verður tungumálið líka að fá að þróast. Þar að auki byggist þetta viðhorf á því að til séu einhver viðmið, einhver „gullstaðall“ um það hvað sé rétt íslenska – en enginn slíkur staðall er til, og langt frá því að ljóst sé á hverju hann ætti að byggjast.

Eina nothæfa viðmiðið um „rétt“ og „rangt“ í máli er því það sem nefnd um málvöndun og framburðarkennslu í grunnskólum setti fram fyrir fjörutíu árum – „rétt mál er það sem er í samræmi við málvenju, rangt er það sem brýtur í bága við málvenju“. Því getur „málvilla“ sem fáir vita af ekki verið „rangt mál“. En iðulega eru tvær (eða fleiri) mismunandi málvenjur í gangi og það er í góðu lagi – sem betur fer eru viðhorf til tilbrigða í máli smátt og smátt að breytast. Rétta – og eina – leiðin til að efla íslenskuna er að hvetja fólk til að nota hana alltaf og alls staðar og vinna með málnotendum, ekki á móti þeim með leiðréttingum, gagnrýni og hneykslun. Það hefur bara öfug áhrif. Íslenska er alls konar – gleðilegan dag íslenskrar tungu!