Ráðherra, góðir gestir! Kærar þakkir fyrir þessa viðurkenningu til félagsins Gefum íslensku séns, sem ég tek við sem stjórnarmaður í fjarveru frumkvöðlanna Peters Weiss formanns félagsins og Ólafs Guðsteins Kristjánssonar ritara þess, en báðir eru erlendis. Hugmyndin á bak við Gefum íslensku séns er sáraeinföld – að venja þau sem eiga íslensku að móðurmáli við að tala móðurmál sitt við fólk sem hefur málið ekki fullkomlega á valdi sínu, og jafnframt að gefa þeim sem eru að læra íslensku tækifæri til að æfa sig í málinu við hversdagslegar aðstæður.
Upphaf félagsins má rekja til frumkvöðlastarfs á Ísafirði sem hófst fyrir nokkrum árum þegar hugmyndasmiðurinn Ólafur Guðsteinn fór að nýta sér reynslu sem hann hafði fengið af því að vera útlendingur í framandi málsamfélagi, þar sem hann hafði fljótt komist að því að ekki var gefinn neinn afsláttur af því að tala mál heimafólks alltaf og alls staðar, enda enskukunnátta víða takmörkuð. En málsamfélagið kom hins vegar til móts við hann, var hvetjandi og hlustaði með þolinmæði á ófullkomið tungutak hans og fyrirgaf honum alls kyns mistök og villur, þannig að hann þjálfaðist smátt og smátt í málinu og varð óragur við að tala það þótt hann vissi að mikið vantaði upp á að hann talaði rétt. En þegar hann kom aftur til Íslands og fór að kenna íslensku við Háskólasetur Vestfjarða áttaði hann sig á því að þessu er allt öðruvísi farið á Íslandi.
Þegar fólk sem er að læra íslensku fer að prófa sig áfram í að tala málið við móðurmálshafa er því nefnilega iðulega mætt með óþolinmæði og sífelldum leiðréttingum, og oftar en ekki skiptir viðmælandinn fljótt yfir í ensku í stað þess að vera uppörvandi og hvetjandi. Málnemar fá þannig ekki tækifæri til að æfa íslenskuna sína en eru slegnir út af laginu og gefast því oft upp á málinu, enda átta þeir sig fljótt á því að íslenskunám er óþarfa fyrirhöfn og leiðindi því að þeir komast víðast hvar upp með að nota ensku. Við gefum íslenskunni nefnilega ekki séns – og við gefum þeim sem eru að læra hana ekki séns. Það er eitthvað öfugsnúið við það að fólk sem hingað kemur og kann lítið í ensku lærir iðulega meira í henni en íslensku. Enskan er allt í kring um okkur og flestum finnst sjálfsagt og eðlilegt að nota hana í samskiptum við fólk sem ekki hefur íslensku að móðurmáli – jafnvel við fólk sem er að læra íslensku og reynir að nota hana.
Þessu verður að breyta og með góðum stuðningi ýmissa, einkum Peters Weiss, fyrrverandi forstöðumanns Háskólaseturs Vestfjarða, efndi Ólafur því til átaks sem Peter gaf heitið Gefum íslensku séns og samdi einkunnarorðið „Við erum öll almannakennarar“, í anda þess sem sagt var á covid-tímanum, „Við erum öll almannavarnir“. Það vísar til þess að það er á ábyrgð okkar allra, samfélagsins í heild, að kenna fólki sem hingað kemur mál samfélagsins og gefa því kost á – og hvetja til – að nota það. Undir merkjum þessa átaks hefur á undanförnum árum verið haldinn fjöldi viðburða á Ísafirði og víðar á Vestfjörðum, þar sem markmiðið hefur verið að auka notkun íslenskunnar í samskiptum fólks með mismunandi móðurmál – gefa íslensku séns.
Þetta hefur tekist vel og átakið hefur vakið athygli út fyrir Vestfirði. En frumkvöðlum þess fannst það ekki nóg og vildu skjóta styrkari stoðum undir starfið og víkka það út til landsins alls, og í byrjun þessa árs var því stofnað formlegt félag undir nafninu Gefum íslensku séns. Starfsemi þess félags er ekki bundin við Vestfirði heldur er markmiðið að breiða út hugmyndafræði átaksins og koma á starfi í anda þess um allt land, og enn fremur að standa fyrir vitundarvakningu um mikilvægi þess að nota íslensku alltaf og alls staðar þar sem mögulegt er, sem er oftar en fólk heldur, í stað þess að skipta yfir í ensku – gefa íslensku séns. Starf undir merkjum Gefum íslensku séns er nú þegar hafið eða í undirbúningi á nokkrum stöðum á landinu.
En betur má ef duga skal. Ef íslenska á áfram að geta verið aðalsamskiptatungumálið í landinu og burðarás samfélagsins um ókomin ár verðum við að standa okkur miklu betur á þessu sviði, leggja miklu meiri áherslu á mállega inngildingu þeirra sem koma til landsins og setjast hér að. Við megum engan tíma missa – eftir því sem fleiri setjast hér að án þess að læra íslensku verður auðveldara að lifa hér og starfa án þess að kunna málið, og minni hvatning til að læra það. Við vonumst til að þessi viðurkenning stuðli að því að vekja athygli á markmiðum félagsins, hvetja fólk til að ganga til liðs við það, taka þátt í starfi þess, og gefa íslensku séns. Takk fyrir okkur!

+354-861-6417
eirikurr