Posted on

24 gráða frost eða 24 gráðu frost?

Í fyrirsögn á mbl.is í gær sagði: „Um 24 gráða frost.“ Þetta er auðvitað hárrétt – gráða er veikt kvenkynsorð sem stendur þarna í eignarfalli fleirtölu sem er iðulega eins og nefnifall eintölu þótt n sé oft skotið inn í fyrrnefndu myndinni. Í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls er eignarfall fleirtölu gefið bæði gráða og gráðna en í Íslenskri stafsetningarorðabók segir „EF.FT. gráðna“ enda er sú bók mjög hörð á því að hafa alltaf n í eignarfalli fleirtölu veikra kvenkynsorða, jafnvel í orðum þar sem lítil sem engin hefð er fyrir því. En myndin með n er varla til – á tímarit.is eru aðeins þrjú dæmi um X gráðna frost / hiti en 625 um X gráða frost / hiti og í Risamálheildinni eru fjögur dæmi um gráðna en rúm 300 um gráða í þessu samhengi.

Hins vegar er myndin gráðu, sem er að forminu til eignarfall eintölu en ekki fleirtölu, margfalt algengari í þessu samhengi. Á tímarit.is eru um 1700 dæmi um X gráðu frost / hiti (þar sem búast mætti við fleirtölu) og í Risamálheildinni eru dæmin hátt í 1600. En þótt orðið gráða sé algengt er hvorugkynsorðið stig margfalt oftar notað í sömu merkingu í þessu samhengi, og þar er alltaf notað eignarfall fleirtölu ef töluorðið er annað en 1 (eða 21, 31 o.s.frv.) – *tíu stigs frost er útilokað. Það eru því augljóslega ekki merkingarlegar ástæður fyrir því að eignarfall eintölu af orðinu gráða er notað í fleirtölumerkingu því að þá ætti sama að gilda um orðið stig. Þess vegna verður að leita annarrar ástæðu fyrir þessari eintölunotkun.

Eina ástæðan sem hægt er að koma auga á er áðurnefnt beygingarlegt samfall nefnifalls eintölu og eignarfalls fleirtölu í myndinni gráða. Það er eins og málnotendum finnist mynd nefnifalls eintölu hljóma óeðlilega þarna – finnist þurfa að sýna á einhvern hátt að um eignarfall sé að ræða. Það má gera með því að nota eignarfall eintölu í stað eignarfalls fleirtölu. Það kann að virðast órökrétt, en þá er rétt að athuga að frá merkingarlegu sjónarmiði er fleirtalan óþörf þarna – hún er þegar komin fram í töluorðinu sem fer á undan, og því engin nauðsyn að tákna hana aftur í nafnorðinu. Þótt gráðu sé formlega séð eintala í sambandinu X gráðu frost er þetta í rauninni merkingarlega hlutlaus mynd – töluorðið ber ábyrgð á tölunni, ræður skilningnum.

Sama máli gegnir um fjölmörg önnur veik kvenkynsorð eins og ég hef áður skrifað um – bæði í samsetningum eins og stjörnuskoðun, perutré o.fl. og samböndum eins og fjögurra stjörnu hótel, 36 peru ljósabekkir o.fl. Þegar að er gáð er það ekkert einsdæmi í málinu að eintala sé notuð þar sem fleirtala væri „rökrétt“. Sama máli gegnir t.d. um tölu sagna sem taka frumlag í aukafalli. Við segjum okkur vantar peninga en ekki *okkur vöntum peninga, þeim er kalt en ekki *þeim eru köldum o.s.frv. – notum eintölumynd sagna og sagnfyllinga þótt fornöfnin okkar og þeim vísi augljóslega til fleirtölu og ráði því hvernig við skiljum setningarnar. Málið er fullt af slíku „ósamræmi“ og „órökréttri“ málnotkun – og það er fullkomlega eðlilegt og í góðu lagi.