Posted on

Úr gammelnorsk yfir í kynlaust tungumál?

Í viðtali við mennta- og barnamálaráðherra á Bylgjunni í gær sagðist hún vilja að við héldum okkur „við okkar íslensku – ja bara þá sem við höfum talað alveg síðan við hættum að tala gamle norsk“. Þetta orðalag lýsir alvarlegum misskilningi eða vanþekkingu. Í fyrsta lagi er ekki talað um gamle norsk heldur gammelnorsk / gamalnorsk, en látum það vera. Í öðru lagi er hæpið að halda því fram að Íslendingar hafi nokkru sinni talað gammelnorsk – vissulega hefur málið sem var talað á Íslandi á fyrstu öldum Íslandsbyggðar væntanlega verið mjög svipað því sem var talað í Noregi, en það er engin sérstök ástæða til að kalla það gammelnorsk. Venjulega er fremur talað um sameiginlegt mál Noregs, Færeyja og Íslands sem norrønt, eða norrænu.

Smátt og smátt fer svo að koma fram ýmiss konar munur á málinu á Íslandi og í Noregi, og eftir 1200 er hægt að fara að tala um tvö mismunandi tungumál, forníslensku og fornnorsku, þótt líkindin væru vissulega mikil framan af, en munurinn eykst verulega á fjórtándu öld. En jafnvel þótt við vildum kalla málið sem talað var á Íslandi fyrstu aldirnar (gammel)norsk væri ekki hægt að segja „við hættum að tala gamle norsk“. Við höfum nefnilega aldrei hætt að tala þetta mál – þróunin frá því máli sem hér var talað fyrstu aldir Íslandsbyggðar og allt til nútíma íslensku er samfelld og óslitin og aldrei nein skörp skil sem geri eðlilegt að segja að þjóðin hafi skipt um tungumál og íslenska hafi tekið við af gammelnorsk – eða norrænu.

En þótt við gæfum okkur að þjóðin hefði í raun skipt um tungumál er það ekki heldur rétt sem virðist eiga að lesa úr orðum ráðherrans að við höfum talað sömu íslenskuna „alveg síðan við hættum að tala gamle norsk“. Þótt aldei hafi orðið rof í málþróuninni er vitanlega margs konar munur á forníslensku og nútímamáli – í framburði, orðaforða, beygingum, setningagerð, merkingu, orðavali, málnotkun o.s.frv. Íslenskan hefur alltaf verið að breytast, bæði af innri og ytri orsökum, og þess vegna tölum við ekki sömu íslenskuna og töluð var fyrir þúsund árum – og ekki einu sinni sömu íslenskuna og foreldrar okkar, hvað þá afar og ömmur. En hún er samt áfram íslenska – og verður það þrátt fyrir breytingar nema þjóðin hætti að nota hana.

Ástæðan fyrir því að ráðherrann sá ástæðu til að hnykkja á því að fólk ætti að „halda sig við okkar íslensku“ var að hún er ósátt með að nú sé „búið að vera að blanda inn einhverju kynlausu tungumáli og gera tvö kyn úr tungumálinu okkar“ eins og hún sagði. Þetta er að vísu óskiljanlegt ef það er tekið bókstaflega, því að vitanlega hefur íslenska þrjú málfræðileg kyn, en gera má því skóna að ráðherrann hafi þarna verið að vísa til tilrauna með að draga úr karllægni málsins, ekki síst með því að minnka notkun karlkynsorða í vísun til fólks (starfsfólk í stað starfsmenn, framkvæmdastýra um konu í stað framkvæmdastjóri) og með því að nota hvorugkyn fornafna og töluorða í stað karlkyns í almennri vísun (öll velkomin í stað allir velkomnir).

Vissulega eru skiptar skoðanir um þessar breytingar, en það er fráleitt að tengja þær „kynlausu tungumáli“ – hvorugkyn er auðvitað málfræðilegt kyn ekki síður en karlkyn og kvenkyn. Af því að ráðherrann talaði um „okkar íslensku“ er rétt að minna á að ástæðan fyrir þessum tilraunum er einmitt sú að ýmsum finnst hefðbundin notkun karlkyns í kynhlutlausri merkingu ekki höfða til sín – segja „þetta er ekki okkar íslenska“. Hér má einnig minna á að á degi íslenskrar tungu í fyrra fengu Samtökin ´78 viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu og baráttu fyrir tilverurétti innan tungumálsins. Það verður að ætlast til þess að mennta- og barnamálaráðherra tali af meiri þekkingu um íslenska tungu og sýni stöðu viðkvæmra hópa innan hennar meiri skilning en fram kom í áðurnefndu viðtali.