Posted on

Kvæði í kross

Í „Málvöndunarþættinum“ var vakin athygli á því að í dagskrárkynningu í Ríkissjónvarpinu er talað um mann sem „vatt kvæði sínu í kross fyrir tveimur árum“ og spurt hvort ekki væri venja að nota þarna sögnina venda en ekki vinda. Það er alveg rétt – í Málfarsbankanum segir: „Rétt er að segja: hann vendir (þt. venti) sínu kvæði í kross. Ekki: „hann vindur (þt. vatt) sínu kvæði í kross“.“ Úr því að ástæða þykir til að taka þetta sérstaklega fram má ætla að þessi „ranga“ notkun sé ekki einsdæmi. Ég heyrði reyndar þessa kynningu og tók ekki eftir neinu óvenjulegu sem bendir til þess að ég sé vanur að heyra sögnina vinda í þessu orðasambandi, sem er skýrt 'skipta um stefnu eða skoðun, snúa sér að einhverju nýju' í Íslenskri nútímamálsorðabók.

Jón G. Friðjónsson segir í Merg málsins að sambandið sé „kunnugt frá síðari hluta 17. aldar“ – elstu dæmin eru úr „Tófu kvæði“ þar sem segir reyndar „Sný ég mínu kvæði í kross“ og úr kvæðinu um „Ólaf Liljurós“ þar sem segir „Vík ég mínu kvæði í kross“ í einni gerð þótt „Vendi ég mínu kvæði í kross“ sé vissulega langalgengast. Jón segir að líkingin kunni „að vísa til nýrrar stefnu sem liggur þvert á hina fyrri. Venda skipi merkir 'breyta stefnu skips' […] en kvæði merkir 'það sem kveðið er'. Bein merking er því 'skipta um yrkisefni (kvæðis)'. E.t.v. stendur kvæði í orðatiltækinu til að fá fram stuðlasetningu.“ En sú skýring er kannski óþörf – í ljósi þess að elstu þekktu dæmin eru úr kvæðum liggur beint við að skilja upprunann bókstaflega.

Notkun sagnarinnar vinda í þessu sambandi virðist ekki mjög gömul. Elsta dæmi sem ég finn um hana er í Alþýðumanninum 1945: „Og Bandamenn hafa nú undið sínu kvæði í kross.“ Í Frjálsri verslun 1949 segir: „hann vatt sínu kvæði í kross og gerðist Viðeyjarbóndi.“ Í Morgunblaðinu 1959 segir: „Ungur bóndi úr Reykholtsdal […] vatt kvæði sínu í kross og fór í róður.“ Í Skák 1984 segir: „Fischer vindur sínu kvæði í kross afar laglega.“ Alls eru tæp hundrað dæmi um sögnina vinda í þessu sambandi á tímarit.is, þorri þeirra frá þessari öld. Í Risamálheildinni eru dæmin um 130. Sögnin vinda sækir því greinilega á í sambandinu þótt venda sé enn margfalt algengari – dæmin um hana í Risamálheildinni eru hátt í ellefu hundruð.

Það er engin furða að sagnirnar venda og vinda hafi tilhneigingu til að blandast saman. Auk þess að vera nauðalíkar í framburði eru þær náskyldar – sú fyrrnefnda orsakasögn leidd af þeirri síðarnefndu. Merkingarlega eru þær líka býsna nánar, fela báðar í sér grunnmerkinguna 'snúa'. Vissulega getur venda virst eiga betur við í umræddu sambandi því að hún merkir 'snúa við, breyta um stefnu'. En vinda hefur líka merkinguna 'snúa sér snögglega, snúa við', eins og í  vinda sér að / frá einhverjum og vinda sér á hæl, og sú merking smellpassar hér. Í ljósi þess finnst mér ekkert að því að hafa tilbreytni í sambandinu og tala um að vinda sínu kvæði í kross, enda hafa sagnirnar snúa og víkja áður verið notaðar þarna auk venda eins og fyrr segir.