Posted on

Smellibeita

Orðið smellibeita er ekki gamalt í málinu – elsta dæmi sem ég finn um það er á Twitter 2013: „Orð dagsins er smellibeita (e. Click bait eða Link bait).“ Eins og þarna kemur fram er þetta þýðing á enska orðinu clickbait og merkir: 'Tengill á efni sem er fyrst og fremst gerður til þess að draga að athygli og fá notendur til að smella (oft með misvísandi eða villandi upplýsingum)' svo að notuð sé skilgreining „Tölvuorðasafnsins“ í Íðorðabankanum. Tilgangurinn með því að fá fólk til að smella er að auka umferð um vefinn svo að hann verði fýsilegri fyrir auglýsendur. Orðið sjálft hefur töluvert verið notað á síðustu árum en fyrirbærið þó mun meira eins og sjá má í íslenskum vefmiðlum – hér eru nokkrar fyrirsagnir af vef DV 18. nóvember 2026:

„Stærstu vendingarnar í deilu Beckham-hjónanna við son sinn hingað til? – Þetta gerði Victoria á dögunum“; „Vilhjálmur reiður vegna stöðu Kristjáns – „Girðið ykkur í brók og komið þessu fólki til hjálpar““; „Gusumeistari mætir borginni í dómsal á morgun og furðar sig á hörkunni – „Sérstakt að fara þessa leið““; „Móðir æf yfir því sem hún fann í barnadeildinni í Primark: „Þetta er ekki viðeigandi!““; „Ferðamaður á leið til Íslands furðar sig á íslenskri hefð – Vill vita hvort þetta sé satt“; „Greina frá sorglegu andláti í yfirlýsingu – Aldrei séð neitt þessu líkt á 30 árum“; „Hver verður illmennið í næstu Bond-mynd? – Þessi 10 eru til í verkefnið“; „Björn fengið nóg og vill að Íslendingar hætti þessu strax – „Af hverju er þetta aldrei rætt?““.

Ég veit ekki hvort þið hafið áttað ykkur á því hvað þessi dæmi eiga sameiginlegt: Í þeim öllum er notað ábendingarfornafnið þessi / þetta. Meginhlutverk ábendingarfornafna er, eins og nafnið gefur til kynna, að benda á eitthvað sem við heyrum eða sjáum, annaðhvort í undanfarandi tali eða texta eða þá í umhverfinu. Í fyrstu málsgrein efnisgreinarinnar sem þú ert að lesa er þessi notað með nafnorðinu dæmi og því er augljóst að verið er að vísa í undanfarandi texta – dæmin í efnisgreininni á undan. En í þeim dæmum er ekki verið að benda á neitt sem komið er á undan eða er sýnilegt í umhverfinu. Til að komast að því á hvað ábendingarfornafnið vísar verður lesandinn því að smella á fyrirsögnina sem inniheldur það – og það er einmitt tilgangurinn.

Vissulega byggjast ekki allar smellibeitur á notkun ábendingarfornafna, en ótrúlega hátt hlutfall þeirra samt. Í sumum smellibeitum eru önnur orð sem venjulega vísa einnig í undanfarandi texta eða umhverfið notuð á sama hátt, svo sem atviksorðið svona – tvær fyrirsagnir í DV sama dag eru „Tjáir sig um ólík viðbrögð parsins í rifrildi – Svona leysa þær málin“ og „Gæti orðið sögulegt kvöld í Laugardalnum – Svona sækir þú um frían miða““. Það er varla hægt að halda því fram að þessi notkun ábendingarfornafna og annarra vísandi orða sé beinlínis „rangt mál“, en mér finnst þetta samt vera gróf misnotkun á tungumálinu. En ég á svo sem ekki von á því að neitt breytist þótt ég tuði yfir því – tungumálið má sín jafnan lítils gagnvart peningaöflunum.