Posted on

Jafnfætt fólk – og jafnhent

Ég rakst á umfjöllun um unga knattspyrnukonu þar sem sagði „Lísa er jafnfætt og spilar á miðjunni“. Ég kannaðist ekki við lýsingarorðið jafnfættur en þóttist þó skilja merkinguna og fékk staðfestingu á mínum skilningi í Íslenskri orðabók – 'sem er jafnvígur á báða fætur, hvorki rétt- né örvfættur'. En þetta er reyndar ekki fyrsta skýring orðsins þarna – hún er 'sem er með jafnlanga fætur' sem mér fannst augljóst að ekki ætti við í þessu tilviki. Þetta mun þó vera eldri merking orðsins – í Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924 er jafnfættur skýrt 'med lige lange ben' – og einnig 'isopod', en jafnfættir er lýsingarorð sem Benedikt Gröndal notaði í Dýrafræði sinni um ákveðna tegund krabbadýra sem heita isopoda á ensku og kallast nú jafnfætlur.

Merkingin 'með jafnlanga fætur' á greinilega við í DV 1982 þar sem segir: „ráðherrann er jafnfættur og mundi ganga óhaltur meðan báðir fætur eru jafnlangir“. En þetta er reyndar eina dæmið sem ég hef fundið um þá merkingu, og ekki löngu eftir þetta fara að sjást dæmi um merkinguna 'jafnvígur á báða fætur' – í fótboltaumfjöllun í DV 1986 segir: „Jafnfættur og mjög leikinn.“ Það er samt ekki fyrr en undir aldamót og einkum á þessari öld sem farið er að nota orðið eitthvað að ráði, og þá alltaf í nýrri merkingunni – langoftast í fótboltaskrifum. Alls eru um tuttugu dæmi um orðið í þessari merkingu á tímarit.is og um hundrað í Risamálheildinni. Orðið er þó ekki nógu algengt til að hafa komist inn í Íslenska nútímamálsorðabók.

En fæst okkar eru jafnfætt heldur annaðhvort réttfætt eða örvfætt. Þau orð eru eðlilega mun algengari og er bæði að finna í Íslenskri nútímamálsorðabók, skýrð 'sem beitir fyrir sig hægri fæti frekar en vinstri' og 'sem beitir fyrir sig vinstri fæti frekar en hægri'. Þessi orð virðast ekki vera ýkja gömul í málinu – hvorugt þeirra er í Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924. Elsta dæmi um örvfættur er í Alþýðublaðinu 1945: „Sá, sem er örvhentur, er einnig örvfættur; – og sést þetta ekki hvað sízt á knattspyrnumönnum.“ Elsta dæmi um réttfættur (fyrir utan dæmi frá 1941 þar sem orðið er notað um hest og merkingin óljós) er í Alþýðublaðinu 1972: „var sem fyrr kjölfesta liðsins, rólegur, æðrulaus, en þó öruggur, eins konar réttfættur Ellert Schram.“

Þessi orð eru vitanlega smíðuð með hliðsjón af orðunum rétthentur / rétthendur og örvhentur / örvhendur sem eru miklu eldri – a.m.k. það síðarnefnda kemur fyrir í fornu máli og hitt á nítjándu öld. En lýsingarorði jafnhentur / jafnhendur er yngra og mun sjaldgæfara. Myndin jafnhentur er gefin í Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924 en í merkingunni 'jafnhentugur', 'ligesaa hensigtsmæssig' og sú er merkingin í Andvara 1882: „Eg get því eigi ætlað annað lánfæri jafnhent oss sem seðlabanka.“ Hliðstæða merkingu við rétthentur og örvhentur finn ég ekki fyrr en í Morgunblaðinu 1987: „auk þess væri hann jafnhentur.“ Það er svo ekki fyrr en undir aldamót og á þessari öld sem farið er að nota orðið að ráði, eins og með jafnfættur.

Myndin jafnhendur með d er þó eldri en t-myndin – elsta dæmi um hana er í Skírni 1915: „En börn virðast framan af jafnhend.“ Í Viðbæti Íslensk-danskrar orðabókar frá 1963 sem og í Íslenskri orðabók er myndin gefin í merkingunni 'sem er jafnvígur á báðar hendur, hvorki rétt- né örvhendur'. En myndin virðist ekkert hafa verið notuð undanfarin hundrað ár eða svo enda eru d-myndirnar rétthendur og örvhendur einnig sjaldgæfar í seinni tíð. Samfall við myndir sagnarinnar jafnhenda sem hefur allt aðra merkingu gæti einnig spilað inn í. Bæði jafnfættur og jafnhentur eru skemmtileg dæmi um gömul orð sem hafa verið mjög sjaldgæf og nærri horfin í eldri merkingu og þess vegna er hægt að endurlífga þau og gefa þeim nýja merkingu.