Í vikunni varð nokkur umræða um tillögu bæjarfulltrúa Miðflokksins á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að bænum yrði mótuð málstefna eins og hefur verið lagaskylda sveitarfélaga frá 2014 en fæst þeirra hafa sinnt – í umræðum kom reyndar fram að slík stefna hefði lengi verið í smíðum í Hafnarfirði þótt vinna við hana hafi legið niðri undanfarið. En í tillögunni voru líka ákvæði um það hvernig stefna Hafnarfjarðarbæjar ætti að vera – í öllu efni í nafni bæjarins skyldi „fylgt opinberum ritreglum og viðtekinni málvenju um málfræðilegt kyn. Þegar vísað er til fólks almennt eða hóps af óákveðnu kyni verði notað sjálfgefið málfræðilegt kyn, sem er hin hefðbundna málnotkun í íslensku, til dæmis „allir velkomnir“ en ekki „öll velkomin““.
Þetta er ekki fyrsta eða eina dæmið um að Miðflokkurinn hafi lýst andstöðu við tilraunir til að draga úr karllægni íslenskunnar. Eins og þau sem hafa fylgst með skrifum mínum vita hef ég iðulega stutt eða varið ýmsar slíkar tilraunir og þess vegna kemur varla á óvart að ég lýsi andstöðu við umrædda tillögu. En ég hefði verið alveg jafnmikið á móti tillögu sem gengi í þveröfuga átt – þ.e. gerði ráð fyrir því að gera notkun kynhlutlauss máls skyldubundna. Það er mikilvægt að leggjast eindregið og af fullri hörku gegn öllum tilraunum til að festa í lög eða reglur einhver ákvæði um tiltekið form málsins, svo sem notkun – eða bann við notkun – ákveðinna orða, orðasambanda, kynja, falla, beygingarmynda, setningagerða o.s.frv.
Með ákvæðum af þessu tagi er í raun verið að leggja bann við málbreytingum og tilbrigðum í máli – verið að hefta eðlilega málþróun og sköpunarmátt málsins. Þótt slík lög og reglur ættu í byrjun aðeins við um málnotkun hjá ríki, sveitarfélögum og opinberum stofnunum er hættan sú að farið yrði – jafnvel af hálfu stjórnvalda – að líta á það mál sem þar er skylt að nota sem einhvers konar ríkismál sem kennt verði í skólum, fjölmiðlum beri að nota, o.s.frv. Þá er stutt í hömlur á tjáningarfrelsi sem eru bannaðar í stjórnarskrá. Það er auðvitað sjálfsagt að leggja áherslu á skýrt og vandað mál en meginatriðið er að skilgreina ekki nema í almennum orðum í hverju það felist. Málnotendur verða að finna það hjá sjálfum sér hvað er gott og vandað mál.
Sem betur fer var það sjónarmið ríkjandi í umræðunni í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, bæði hjá meiri- og minnihluta, að óeðlilegt væri að hefta svigrúm til tjáningar á þann hátt sem tillagan gerði ráð fyrir. Einn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins bókaði: „Málstefna […] þarf […] að taka mið af fjölbreyttu samfélagi, tungumáli þess og þeim ólíku aðstæðum sem fólk býr við. Mikilvægt er að sú málstefna sem Hafnarfjarðarbær setur sér verði ekki útilokandi, heldur byggi á virðingu, víðsýni og jafnræði. Umræðan um málstefnu má ekki einskorðast við afstöðu til kynhlutlauss máls, heldur þarf hún að ná til málnotkunar í víðara samhengi, svo sem skýrleika, aðgengis, málfars, fjölbreytileika og virðingar fyrir ólíkum málvenjum og sjónarmiðum.“
Og í bókun eins fulltrúa Framsóknarflokksins segir: „Í samskiptum bæjarins við íbúa á að nota vandaða og skýra íslensku. Til þess þarf starfsfólk að hafa svigrúm til að velja orðalag sem hæfir tilefninu og nær til fjölbreytts hóps íbúa. Jafnréttis- og mannréttindastefna Hafnarfjarðar á að endurspeglast í daglegum samskiptum bæjarins. Að þrengja svigrúm til að nota orðalag á borð við „öll velkomin“ í almennum boðum væri skref aftur á bak í jafnréttisbaráttunni. Bærinn á að hlusta á sjónarmið hinsegin fólks við mótun málstefnu og ávarpa íbúa með þeim hætti að þau finni að þau eigi jafnan samastað í samfélaginu.“ Undir þetta má taka, og ég endurtek að óháð afstöðu til kynhlutlauss máls er öll reglubinding á formi málsins stórvarasöm.

+354-861-6417
eirikurr