Posted on

Háþróuð árás og metnaðarfull áætlun

Þótt ég leggi áherslu á að málhefð geti breyst og fráleitt sé að reyna að binda hana í lög eða reglur þýðir það ekki að mér finnist hún einskisverð eða að engu hafandi. Þvert á móti – almennt séð finnst mér æskilegt að málhefðin haldist sem minnst breytt. Fyrir því eru tvær meginástæður. Verulegt rof á málhefð getur annars vegar valdið misskilningi eða skilningsleysi í samskiptum fólks, og hins vegar leitt til þess að við misskiljum eða eigum erfiðara með að skilja eldri íslenska texta. En fæst afbrigði frá málhefð stafa af því að fólk sé vísvitandi að virða hana að vettugi, heldur af því að fólk þekkir hana ekki nógu vel. Lausnin á því er ekki boð eða bönn, heldur mikil og stöðug notkun málsins á öllum sviðum – í tali, hlustun, lestri og ritun.

Í fréttum af tölvuárás á 1984 var haft eftir bæði framkvæmdastjóra fyrirtækisins og forstjóra CERT-IS að þetta hefði verið „fáguð árás“. Það má ætla að þarna sé verið að þýða enska orðalagið sophisticated attack sem er algengt um árásir af þessu tagi. Vissulega getur sophisticated þýtt 'fágaður' en sú merking á varla við hér auk þess sem fágaður er of jákvætt orð þarna. Engin þeirra skýringa sem gefnar eru á lýsingarorðinu fágaður í íslenskum orðabókum á við um þessa árás – sú sem kemst næst er orðið agaður. En sophisticated getur líka merkt 'intelligent or made in a complicated way and therefore able to do complicated tasks' – 'margbrotinn, flókinn; háþróaður' í Ensk-íslenskri orðabók. Það er sú merking sem á við hér.

Í frétt um loftslagsráðstefnuna COP31 sagði: „AFP fréttaveitan hefur eftir ónefndum embættismanni hjá Evrópusambandinu að síðasta útgáfan sé ekki ásættanleg og ekki nógu metnaðargjörn.“ Í upphaflegu fréttinni var sagt „not ambitious enough“ og vissulega getur ambitious þýtt 'metnaðargjarn' – en einnig 'metnaðarfullur'. Í Íslenskri nútímamálsorðabók er fyrrnefnda orðið skýrt 'sem hefur mikinn metnað' en það síðarnefnda 'sem er rekinn áfram af metnaði'. Þótt bæði orðin megi nota sem þýðingu á sama enska orðinu er mikilvægur munur á notkun þeirra sem ekki kemur beinlínis fram í skýringunum – metnaðargjarn hefur yfirleitt aðeins verið notað um fólk, en metnaðarfullur bæði um fólk og fyrirbæri og ætti því við hér.

Í þessum dæmum er orðanotkun ekki í samræmi við þá málhefð sem ég þekki og er vanur. Það er algengt og eðlilegt – ég er kominn yfir sjötugt og alinn upp í miklu samneyti við fólk sem var fætt kringum aldamótin nítján hundruð. Málkennd mín er þess vegna býsna forn. En þótt ég bendi iðulega á eitthvað sem er ekki í samræmi við það sem ég er vanur ber ekki að túlka það sem leiðréttingar, hvað þá sem aðfinnslur eða hneykslun, heldur sem fræðslu – mér finnst sjálfsagt að vekja athygli á eða minna á hvernig málhefðin er eða hefur verið. Mér er hins vegar vel ljóst að hefðin breytist og í mörgum þeim tilvikum sem ég nefni er breytingin örugglega komin vel á veg án þess að ég hafi veitt því athygli. Það er líka alveg eðlilegt og í góðu lagi.