Verð á NERA í Kaupmannahöfn lok mars
Guðrún Ragnarsdóttir flytur pappír, sem ég er einnig skráður fyrir: Responses of upper secondary school leaders in Iceland to a new curriculum in an ostensibly decentralized system.
Erindið er byggt á doktorsverkefni hennar og viðtölum sem við tókum við forsvarsmenn nokkurra framhaldsskóla. Hún þróar þarna mjög áhugavert sjónarmið sem sýnir að skóli getur í senn birst sem skipulagsheild (organization) og stofnun (institution). Sama á við um skólastjórnendur. Þeir geta, hver og einn, sýnst á sér samsvarandi tvær hliðar. Mjög spennandi. Þetta sjónarhorn finnst í rannsóknum á annars konar rannsóknum, ef grannt er skoðað, en ekki endilega í skólaheiminum.
Ég held áfram að þróa hugmyndir mínar um hvernig prófræði ræður skólaþróun. Rek þarna mun á stöðu kynja, en einnig annarra hópa og sýni hve gegnumgangandi þessi þróun er á heimsvísu.
The hidden global and local dynamics of the expansion of higher education Jonasson NERA Expansion March 2017
Í erindi um stöðu ævimenntunar og starfsþróunar leitast ég við að rökstyðja að hvortveggja eigi heima í kjarna nútíma menntakerfa en ekki í jaðri þeirra eða í orðræðu um þau, eins og vill verða. En kerfin sem slík (og þeir sem eru í forsvari) virðast hvorki vilja né geta tekið slíkt til athugunar. Þó eru undantekningar, t.d. í umræðu um menntamál í Singapore.
Why formal education, lifelong learning (LLL) and professional development (PD) should be a part of the same educational discourse and thus be squarely placed at the core of the system of education (and why not). 03 NERA JTJ PD 2017 conference JTJ presentation