Posted on 2 athugasemdir

Enskt tal í útvarpsfrétt

Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var sagt frá alvarlegu umhverfisslysi í Bandaríkjunum. Í fréttinni var rúmlega 20 sekúndna innslag á ensku þar sem ónafngreindur fulltrúi umhverfisstofnunar Bandaríkjanna lýsti þeim kröfum sem stofnunin gerði á hendur fyrirtækinu sem ber ábyrgð á slysinu. Þetta var hvorki þýtt né endursagt á íslensku og í þessu innslagi kom ýmislegt fram sem ekki var nefnt í íslenskum texta fréttarinnar – hlustendum var því greinlega ætlað að skilja enskuna.

Þetta er ekki einsdæmi – mér finnst það færast í vöxt að enskt tal heyrist í fréttum og fréttaskýringum í útvarpi. Það getur átt rétt á sér að vissu marki, t.d. til að leyfa hlustendum að heyra raddir þekkts fólks eða hlusta á einhverjar meiriháttar yfirlýsingar. Hvorugu var til að dreifa í þessu tilviki, en þótt svo hefði verið hefði samt átt að þýða innslagið. E.t.v. hefur það verið ætlað fyrir sjónvarpsfréttir þar sem hægt er að láta texta fylgja, en í útvarpi hefði átt að sleppa innslaginu og endursegja efni þess.

Mér finnst þetta óboðlegt, einkum og sér í lagi í Ríkisútvarpinu. Það á ekki og má ekki gera ráð fyrir því að allir útvarpshlustendur skilji ensku. Vissulega má segja að í þessu tilviki hafi ekki verið um að ræða frétt sem eigi brýnt erindi til almennings og þess vegna komi ekki að sök þótt hluti hennar hafi eingöngu verið á ensku. En það skiptir bara engu máli – þetta er grundvallaratriði sem ekki á að víkja frá. Ég vonast til þess að Ríkisútvarpið – og aðrar útvarpsstöðvar – geri þetta ekki að vana.

2 thoughts on “Enskt tal í útvarpsfrétt

  1. Þetta var alveg einsdæmi – mér finnst ansi óþægilegt að hlusta á enska texta í útvarpsfréttum án þýðingar, alveg eins og að biðja fólk að skilja eitthvað sem þeim var ekki útskýrt. Í raun myndi ég vilja geta breytt MP4 to transcript og fengið texta til að skilja betur – eins og þegar maður situr í kaffihúsi og nennir ekki að trassa sig með að heyra í gegnum rugling.

  2. As someone who creates AI Birthday Video content and birthday invitation designs, I know how crucial clear communication is – it's disappointing that RÚV assumes all listeners understand English, which excludes many from important information.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.