Að renna út á tíma
Orðalagið renna út á tíma bar hér á góma í morgun og var vísað í blogg Ómars Ragnarssonar sem segir að þetta sé „enska eða enskuskotin íslenska“. Gagnrýni á þetta orðasamband er ekki ný af nálinni – Gísli Jónsson sagði í Morgunblaðinu 2001: „,,Að renna út á tíma“ er afkáraleg stæling úr ensku um það að komast í tímaþröng, tímahrak.“ Elsta dæmi sem ég finn um renna út á tíma er í Alþýðublaðinu 1988: „Við vorum að renna út á tíma, urðum að svara fyrir 15. febrúar hvort forkaupsrétturinn yrði nýttur eða ekki.“ Í ræðu á Alþingi 1988 segir: „Virðulegur forseti, er ég að renna út á tíma?“ Í DV 1989 segir: „Þeir halda því fram að verslunin takmarki framboð á íslenskum bjór til þess að tryggja sölu á erlendum bjór sem er að renna út á tíma.“
Það er trúlega rétt að þetta orðalag sé ættað úr run out of time í ensku, en það er ekki næg ástæða til að fordæma það því að samband sagnarinnar renna, atviksorðsins út og nafnorðsins tími er gamalt í málinu. Í Skírni 1886 segir: „Sá tími rann út, meðan Tórýmenn voru við stjórnina.“ Í Aldamótum 1893 segir: „tími leiptursins og jarðskjálptanna var runninn út.“ Í Ísafold 1897 segir: „svo að hann standi snauður og afrekalaus, þegar tíminn rennur út.“ Í Skýrslum um landshagi á Íslandi 1858 segir: „er 5 ára tími sá, sem skipið var leigt um, útrunninn 1. apríl.“ Í Þjóðólfi 1860 segir: „voru mennirnir með peningana ókomnir að sunnan, og sá tími útrunnin sem þeirra var von.“ Í Þjóðólfi 1864 segir: „Hér stóð nú kálfrinn í kúnni, og vopnahléstíminn útrunninn.“
Í bloggi sínu vísar Ómar í orðalagið falla á tíma úr skákmáli og hugnast það betur en renna út á tíma sem hann segir „á góðri leið með að ryðja notkun íslenskra orða, svo sem „að falla á tíma““. Orðalagið falla á tíma virðist reyndar ekki vera mjög gamalt – elstu dæmi sem ég finn um það eru frá miðjum sjötta áratugnum og spurningin er hvort það er eitthvað síður sniðið að ensku. Þetta heitir á ensku flag fall sem vísar til þess að „flaggið“, litli rauði vísirinn á (gamaldags) skákklukku, fellur þegar tíminn er úti. Ástæðan fyrir því að sögnin falla er notuð í íslenska sambandinu er væntanlega sú að fall er notuð í því enska. En hvað sem upprunanum líður er ljóst að ekki er hægt að nota falla á tíma í öllum merkingum sem renna út á tíma hefur.
Eins og dæmin sýna er það ekki eingöngu notað um að komast í tímaþröng eins og Gísli Jónsson nefndi, heldur einnig um það þegar eitthvað er að verða úrelt – útrunnið. En það er líka notað þegar tími sem er gefinn til að ljúka einhverju rennur út án þess að nokkuð sé aðhafst, eins og dæmið „Aðgerðin rann út á tíma“ úr áðurnefndu bloggi Ómars sýnir. Dæmum um sambandið renna út á tíma hefur fjölgað ört síðan um miðjan tíunda áratuginn og alls eru rúm 700 dæmi um það í Risamálheildinni, þar af tæp 400 úr öðrum textum en af samfélagsmiðlum. Sambandið er því greinilega orðið fast bæði í formlegu og óformlegu málsniði og ég sé enga ástæðu til að amast við því enda löng hefð fyrir því að tengja renna og tíma saman eins og áður segir.