Á vefmiðli rakst ég á setninguna „Bréf sem var skrifað af farþega skipsins Titanic dögum áður en hann lést verður boðið upp á sunnudaginn“. Fyrir utan skipsheitið Titanic eru þarna auðvitað eintóm íslensk orð, en orðalagið er þó ekki í fullu samræmi við hefðbundna íslenska setningagerð. Samkvæmt henni væri nefnilega eitthvert ákvæðisorð með nafnorðinu dögum þarna, töluorð, lýsingarorð eða óákveðið fornafn – t.d. tveimur dögum, fáum dögum, einhverjum dögum, nokkrum dögum eða eitthvað slíkt. Aftur á móti er engin þörf á slíku ákvæðisorði í ensku og ljóst virðist að setningin er yfirfærð beint úr því máli – í ýmsum fréttum af umræddu bréfi segir „A rare Titanic letter written by a passenger days before he died in the disaster.“
Ég hef svo sem rekist á hliðstæðar setningar áður og hægt er að finna ýmis dæmi í textum frá síðustu árum. Í Vísi 2008 segir: „Árum síðar fékk ég loks tækifæri til að hitta annað kóngafólk.“ Í Morgunblaðinu 2011 segir: „Klukkustundum síðar átta starfsmenn sig á því að eitthvað vantar í hillurnar.“ Í Morgunblaðinu 2016 segir: „Dögum síðar spurði hún mig út í þennan Gimbil.“ Í Vísi 2016 segir: „Dögum seinna […] fannst síðasta manneskjan sem grafist hafði undir snjóþunganum.“ Í Vísi 2018 segir: „Mínútum síðar hringdi forsetinn.“ Í Vísi 2018 segir: „Mánuðum síðar áttaði sig hún hins vegar á því hvers eðlis brotin hafi verið.“ Í Bændablaðinu 2021 segir: „Vikum eða mánuðum síðar komu þau aftur á það svæði sem þær höfðu verið á.“
Þarna eru dæmi um ýmis orð sem vísa til tíma – mínúta, klukkustund, dagur, vika, mánuður, ár. Í öllum þessum dæmum finnst mér þurfa að vera eitthvert ákvæðisorð á undan nafnorðinu þótt þau hljómi vissulega ekki öll jafn óeðlilega í mínum eyrum. Þótt ég hafi ekki fundið dæmi um það í fljótu bragði mætti e.t.v. búast við svipuðum dæmum með öðrum orðum sem vísa til annars konar mælingar, svo sem lengdar eða hæðar – setningar eins og *þessi leið er bara kílómetrum lengri en hin eða *sjávarborð er sentimetrum hærri en fyrir öld. Slík bein yfirfærsla ensks orðalags er sífellt að verða meira áberandi í íslensku eins og ég hef oft skrifað um. Þetta eru kannski ekki stórkostleg málspjöll en samt alltaf betra að halda sig við málhefð.

+354-861-6417
eirikurr