Posted on

Að heiðra skuldbindingar

Í frétt Ríkissjónvarpsins í kvöld um fund Selenskís forseta Úkraínu með Burnham forsætisráðherra Bretlands var sagt: „Burnham hét því að heiðra að öllu leyti skuldbindingar Breta gagnvart Úkraínumönnum.“ Þetta orðalag er ekki einsdæmi og ekki alveg nýtt, en ekki í samræmi við hefðbundna merkingu sagnarinnar heiðra sem er skýrð 'gera (e-m) heiður, sýna (e-m) heiður eða virðingu' í Íslenskri nútímamálsorðabók. Þarna liggur enskt orðalag augljóslega að baki – það sem Burnham sagði var „I will honour every commitment this country has made to Ukraine in full“. En þótt sögnin honour geti vissulega þýtt 'heiðra' og geri það oft þýðir hún líka 'virða' eða 'standa við' og það væri eðlilegri þýðing í þessu tilviki.

Aftur á móti er sambandið halda í heiðri vel þekkt í þessari merkingu a.m.k. síðan á nítjándu öld. Elsta dæmi þess með nafnorðinu skuldbinding sem ég finn er í Árbók Háskóla Íslands 1933: „Þeir gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að létta hersveitum sérhvers félaga bandalagsins för yfir land sitt, er tekur þátt í sameiginlegum athöfnum þeirra til þess að halda í heiðri skuldbindingum sáttmálans.“ Athugið að þarna tekur sambandið með sér þágufall, skuldbindingum, og þannig virðist það hafa verið framan af, en þolfall fer að sjást um 1940: „Hann lofaði að halda í heiðri hin nýju lög“ segir í Vísi það ár. Í Tímanum 1962 segir: „Íran mun halda áfram samvinnu sinni við Vesturlöndin og halda í heiðri skuldbindingar sínar.“

En það er ekki fyrr en undir síðustu aldamót sem sögnin heiðra fer að sjást í þessari merkingu. Í  Degi 1999 segir: „Á formaðurinn ekki að heiðra skuldbindingar sínar gagnvart þessu fólki líka?!! Í Morgunblaðinu 2006 segir: „Steingeitin heiðrar skuldbindingar sínar.“ Í Viðskiptablaðinu 2011 segir: „hvort ríkissjóður Íslands eigi að heiðra skuldbindingar Landsbankans vegna Icesave.“ Í DV 2012 segir: „Hin nýja ríkisstjórn Grikklands verður að heiðra skuldbindingar sem Grikkland hefur undirgengist.“ Í Vísi 2021 segir: „Kvaðst hún telja réttast að sá meirihluti heiðraði skuldbindingu sína við Skosku þjóðina.“ Í Fréttablaðinu 2022 segir: „Rússland verður að […] heiðra alþjóðlegar skuldbindingar sínar.“

Dæmin eru samt ekki ýkja mörg. Það má svo auðvitað hafa mismunandi skoðanir á þessari nýjung í notkun sagnarinnar heiðra – vitaskuld er þetta íslensk sögn, og algengt að merking sagna hliðrist aðeins til eða víkki. Þarna gerist það væntanlega fyrst og fremst fyrir áhrif frá honour í ensku en orðasambandið heiðra skuldbindingar ber það svo sem ekki sérstaklega með sér að vera undir enskum áhrifum – ef við þekktum ekki til enska orðalagsins myndum við kannski telja þetta eðlilega útvíkkun á halda í heiðri. Mér finnst slík yfirfærsla ensks orðalags á íslensku almennt ekki æskileg en þetta eru svo sem ekki stórkostleg málspjöll og málnotendur verða bara að meta það hver fyrir sig hvað þeim finnst um þetta.