Posted on

Afkastamikill fundur

Í fréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld var sagt: „Donald Trump forseti Bandaríkjanna átti afkastamikla og jákvæða fundi með bæði forseta Úkraínu og forsætisráðherra Ísraels í dag.“ Orðalagið „afkastamikla og jákvæða“ er greinilega þýðing á „positive and productive“ sem talskona Hvíta hússins notaði um fundina. Nú getur lýsingarorðið productive vissulega merkt 'afkastamikill' en í hefðbundnu máli held ég að sú merking komi aðeins til greina þegar orðið er notað um einhvers konar geranda – í Íslenskri nútímamálsorðabók er nafnorðið afköst skýrt 'magn vinnu eða afurðar sem maður, vél eða verksmiðja skilar'. Lýsingarorðið afkastamikill er skýrt 'sem sýnir mikil afköst við verk, mikilvirkur' – vísar sem sé til einhvers konar geranda.

Sú merkingarskýring getur augljóslega ekki átt við um óhlutstætt fyrirbæri eins og fund – hann getur ekki afkastað neinu, ekki verið gerandi. En fáein dæmi um þetta orðalag má þó finna í fjölmiðlum frá síðustu árum. Í fréttum Ríkisútvarpsins 2005 segir: „þetta er búinn að vera geysilega skemmtilegur og afkastamikill fundur.“ Í Morgunblaðinu 2009 segir: „Norðurljósadýrð og afkastamiklir fundir.“ Í Breiðholtsblaðinu 2021 segir: „Í frétt frá Þjónustumiðstöð segir að þetta hafi verið afkastamikill fundur.“ Í Morgunblaðinu 2021 segir: „Hann þakkaði Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra fyrir góðar viðtökur og afkastamikinn fund.“ Í Vísi 2023 segir: „Þetta hefur verið afar afkastamikill fundur.“

Eins og margt annað í málinu virðist þetta því vera að breytast og þá væntanlega fyrir áhrif frá ensku. Í staðinn fyrir 'sem sýnir mikil afköst við verk' er orðið afkastamikill farið að merkja 'sem skilar miklu, sem mikið kemur út úr' eða eitthvað slíkt. Auðvitað er breytingin ekki mikil en hún leiðir til þess að merking orðsins verður ekki jafn bókstafleg og áður – dregur í vissum skilningi úr gagnsæi þess. Um slíkt eru svo sem ótal dæmi í málinu og ástæðulaust að gera veður út af því. Það er hins vegar umhugsunarefni hversu dæmum af þessu tagi fjölgar mikið og ört – dæmum þar sem hefðbundin merking íslensks orðs hliðrast til vegna þess að það er notað sem jafngildi ensks orðs sem hefur svipaða merkingu, en ekki alveg þá sömu.