Orðið vaskur er skýrt 'vegg- eða borðföst skál með rennandi vatni ætluð til þvotta' í Íslenskri nútímamálsorðabók. Þar er ekki að finna veiku myndina vaski sem er gefin í sömu merkingu í Íslenskri orðabók en vísað á vaskur, og í Íslenskri orðsifjabók eru báðar myndir tilfærðar og sagðar tökuorð úr vask í dönsku sem er stytting á vaskekumme. Í Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924 er vaskur tilfært með spurningarmerki sem merkir vafasamt mál. Þegar orð eins og vask er tekið inn í málið og gert að karlkynsorði getur það formsins vegna orðið hvort heldur er sterkt eða veikt og því eru tvímyndirnar skiljanlegar, en það er ljóst af orðabókum að sterka myndin vaskur er talin aðalmynd orðsins og hefur alla tíð verið margfalt algengari en sú veika.
Það er erfitt að leita rafrænt að myndinni vaski vegna þess að í beygingu fellur hún svo oft saman við sterku myndina vaskur og lýsingarorðið vaskur. Á tímarit.is má þó finna slæðing af ótvíræðum dæmum um vaskann (45 dæmi) og vaskanum (30 dæmi) dreift nokkuð jafnt yfir síðustu hundrað ár. Ástæðan fyrir því að ég fór að hugsa um þetta var sú að ég rakst í gær á veiku myndina vaskanum á síðu Facebook-vinar og sú mynd varð þar uppspretta umræðna enda ekki hin venjulega. Spurt var hvort þessi mynd væri ekki norðlenska sem getur vel átt við enda umræddur Facebook-vinur úr Húnavatnssýslu. Ég er ekki heldur frá því að ég hafi vanist þessari mynd í Skagafirði í mínu ungdæmi en þori samt ekkert að fullyrða um það.
Það er a.m.k. ljóst að veika myndin hefur lengi tíðkast í Eyjafirði. Gísli Jónsson sagði í þættinum „Íslenskt mál“ í Morgunblaðinu 1986: „Ég er hins vegar ekki svo harður af mér að vilja útrýma orðinu vaski (vaskur), enda þótt stundum a.m.k. megi setja þvottaskál eða eitthvað þvíumlíkt í staðinn. Ég setti auðvitað orðmyndina vaskur í sviga, samkvæmt eyfirskum uppruna mínum. Mér er tamt að hafa veiku beyginguna, vaski, um vaska o.s.frv. Eitthvað fer í vaskann og er í vaskanum.“ Í frásögn Sigmundar Ernis Rúnarssonar af ömmum sínum á Akureyri í Fréttablaðinu 2021 segir: „„Sagði blíðum rómi að svona lagið færi nú ekki í vaskann.“ Einmitt, vaskann. Það fór ekkert í vaskinn norðan heiða. Og fer ekki enn. Heldur vaskann.“
Í Risamálheildinni eru hátt í 200 dæmi um vaskann og vaskanum, nær öll af samfélagsmiðlum. Nokkur dæmi af Bland.is: „Fyrir norðan er sagt setja í vaskann ... ekki setja í vaskinn“, „ég sagði vaskann en eftir að ég flutti suður þá talar maður um vaskinn“, „Maðurinn minn segir vaskann og er að norðan“, „segja Akureyringar ekki alltaf „vaskann“ í staðinn fyrir „vaskinn“, „ég segi bæði, vaskinn þegar ég er fyrir sunnan og vaskann þegar ég er heima“, „Amma fyrir norðan sagði alltaf „vaskann“ í staðinn fyrir „vaskinn“, „ég fæ grænar bólur þegar ég heyri fólk að norðan segja vaskann“, „Ég myndi setja spegil yfir vaskann (ég er að norðan)“. Það er því greinilegt að veika myndin lifir góðu lífi á Norðurlandi, a.m.k.í óformlegu málsniði.

+354-861-6417
eirikurr