Í undirfyrirsögn í Morgunblaðinu í gær segir: „Þrír lagaprófessorar telja engar undanþágur í boði við aðild.“ Þetta er skýr og fyrirvaralaus fullyrðing um afstöðu prófessoranna, en eins og segir í yfirlýsingu þeirra: „Þessi frétt er ósönn og ekki í samræmi við álitsgerð okkar.“ Í stað þess að viðurkenna það segir Morgunblaðið: „Í yfirlýsingu sinni gera höfundar álitsgerðarinnar athugasemd við undirfyrirsögn fréttar, sem vísar til skoðunar viðmælanda blaðsins á þýðingu álitsgerðarinnar. Ekki þarf að leita lengra en í þriðju málsgrein fréttarinnar til þess að nánari grein sé gerð fyrir því.“ Þetta er fáránlegt yfirklór – fyrirsögnin er hvorki innan gæsalappa né í viðtengingarhætti og því er útilokað að álykta annað en þetta sé fullyrðing blaðsins.
Í framhaldinu segir Morgunblaðið: „Vel er þekkt að fyrirsagnir og undirfyrirsagnir lúta eigin lögmálum, þeim er ætla[ð] að vekja athygli en geta ekki sagt alla sögu.“ Þetta er auðvitað rétt svo langt sem það nær. Fyrirsagnir hafa t.d. oft sérstaka setningagerð sem ekki tíðkast í samfelldum texta. Meðal þess er notkun viðtengingarháttar til að sýna að textinn sé hafður eftir einhverjum en ekki orð fjölmiðilsins sjálfs. Ef fyrirsögnin hefði verið „Þrír lagaprófessorar telji engar undanþágur í boði við aðild“ væri notkun myndarinnar telji vissulega í andstöðu við venjulega notkun viðtengingarháttar, en hugmyndin er að lesendur bæti í huga sér einhverju sem réttlæti hana þarna framan við, svo sem „(Segir að) þrír lagaprófessorar telji …“.
Þótt ekki hugnist öllum slík notkun viðtengingarháttar má segja að hún hafi öðlast nokkra hefð í íslensku blaðamáli og ef henni hefði verið beitt þarna hefði blaðið með réttu getað firrt sig ábyrgð á rangri fullyrðingu og komið ábyrgðinni yfir á viðmælandann – eins og reynt er að gera. En framsöguhátturinn útilokar það, og þótt það sé rétt að fyrirsagnir „geta ekki sagt alla sögu“ verður að gera þá kröfu til þeirra að þær séu ekki í beinu ósamræmi við fréttina. Eftir stendur að tilraunir Morgunblaðsins til að telja lesendum trú um að viðkomandi fyrirsögn eigi rétt á sér eru gaslýsing, ómerkilegur útúrsnúningur. Fullyrðingin er á ábyrgð blaðsins, og hún er röng – Morgunblaðið sagði ósatt um álit prófessoranna þriggja.

+354-861-6417
eirikurr