Í sumar var tilkynnt um stofnun innviðafélagsins Göng og brú ohf sem „er sjálfstætt rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélag í eigu íslenska ríkisins. Hlutverk félagsins er að undirbúa, hanna, fjármagna og annast framkvæmd stærri samgöngumannvirkja sem styðja við öruggar, skilvirkar og nútímalegar samgöngur á Íslandi“ segir á heimasíðu félagsins. Heiti félagsins er ágætt – í nefnifalli. En ég er ekki viss um að aðstandendur hafi leitt hugann að þeim vafamálum sem koma upp þegar það er notað á þeim stöðum í setningu sem krefjast annars falls. Á að segja t.d. ég vinn hjá Göng og brú eða ég vinn hjá Göngum og brú, og forstjóri Göng og brú eða forstjóri Ganga og brúar? Hvorugur kosturinn hljómar sérlega eðlilega, í mínum eyrum a.m.k.
Margyrt heiti af þessu tagi bjóða heim ýmiss konar vandkvæðum, og vandræðagangurinn sem þetta heiti skapar kemur glöggt í ljós í auglýsingu um kynningar- og markaðsdag félagsins. Þar segir m.a.: „Við munum við kynna hlutverk og tilgang Göng og brú“, „segir frá hlutverki Göng og brúar í þeirri uppbyggingu“ og „Fara yfir samspil Göng og brú við málefnasvið sinna ráðuneyta“. Þarna er heitið þrisvar í stöðu sem krefst eignarfalls – í tvö skipti er það haft óbeygt, en í það þriðja er seinna orðið beygt, brúar, en það fyrra óbeygt, göng. Það er auðvitað versti kosturinn. Skást hefði líklega verið að hafa heitið óbeygt en láta orðið innviðafélagið alltaf fylgja og tala um hlutverk og tilgang innviðafélagsins Göng og brú, þótt það sé vissulega stirt.
Frágangur af þessu tagi í auglýsingu frá opinberu félagi er vitaskuld óviðunandi með öllu, en þetta er ekki það eina. Í upphafi auglýsingarinnar stendur: „Við munum við kynna hlutverk og tilgang Göng og brú“ – þar er seinna tilvikinu af við ofaukið. Í auglýsingunni segir enn fremur: „Fjallar um þörfina fyrir uppbyggingu innviða og mikilvægi þess fyrir áframhaldandi velsæld og aukinni samkeppnishæfni Íslands.“ Þarna er notað eignarfall í hvorugkyni, þess, til að vísa í kvenkynsorðið uppbygging – þarna hefði átt að standa mikilvægi hennar. Einnig er notuð þágufallsmyndin aukinni en ætti að vera þolfallið aukna vegna þess að þetta stýrist af forsetningunni fyrir – þarna hefði átt að standa fyrir […] aukna samkeppnishæfni Íslands.
Það alvarlegasta er þó eftir. Í seinustu línu auglýsingarinnar segir: „Viðburðurinn fer fram á ensku og það þarf að skrá sig til þátttöku.“ Viðburðurinn er á vegum félags sem heitir íslensku nafni, starfar á Íslandi og er í eigu íslenska ríkisins. Viðfangsefni kynningarinnar er uppbygging innviða á Íslandi, og fyrirlesarar eru allt Íslendingar, þar á meðal þrír ráðherrar. Ekki verður séð nein skýring eða réttlæting á því að kynningin fari fram á ensku. Það er fullkomlega óboðlegt og til háborinnar skammar að félag í eigu ríkisins standi fyrir slíku – það nær engri átt að ríkið skuli þannig vera í fararbroddi í óþarfri enskunotkun og mér finnst að ráðherrar eigi ekki að taka þátt í því. Ég vona að sú ákvörðun að hafa kynninguna á ensku verði afturkölluð.

+354-861-6417
eirikurr