Posted on

Bílastæði með valet

Í auglýsingu sem ég sá frá fyrirtækinu „Lagningu“ segir: „Bílastæði við Keflavíkurflugvöll með valet – 10% afsláttur fyrir 65 ára og eldri.“ Það má vel vera að yngra fólk skilji þetta en ég gerði það ekki – og þykist vita að sama gildi um fleiri í markhópnum, 65 ára og eldri. Ég fletti valet upp í Ensk-íslenskri orðabók og þar er það skýrt 'herbergisþjónn; einkaþjónn' og 'hótelþjónn (sem sér um að þvo og pressa fatnað hótelgesta)' en hvorugt virtist geta átt við þarna. En í Cambridge Dictionary kemur fram að þótt þetta sé vissulega merking orðsins í breskri ensku merki orðið í bandarískri ensku 'someone at a hotel or restaurant who puts your car in a parking space for you' – 'starfsmaður hótels eða veitingastaðar sem leggur bílnum í stæði fyrir þig'.

Þetta orð virðist hafa verið notað í íslensku samhengi í rúman áratug. Á Twitter segir 2016: „Einn reiður valet í Boston væntanlega að blóta okkur bræðrum núna“ og 2017: „erum bæði að bíða eftir að valet komi með bílana okkar.“ Elsta dæmi á tímarit.is er í Morgunblaðinu 2017: „Þjónustan er svokölluð „valet parking“ þjónusta sem virkar þannig að tekið er á móti bílum við Leifsstöð og þeir keyrðir á bílastæði fyrirtækisins.“ Í Fréttablaðinu 2019 segir: „um er að ræða þjónustu sem þeir kalla „valet parking“.“ Þarna er gert ráð fyrir að lesendur þekki ekki orðið valet, en í flestum dæmum á vef- og prentmiðlum er orðið ekki notað í vísun til einstaklinga heldur í sambandinu valet parking eða valet þjónusta – oft innan gæsalappa.

Í auglýsingunni sem nefnd var í upphafi gæti valet vísað hvort heldur er til þjónustunnar eða starfsmannsins sem sinnir henni, en það skiptir ekki máli – aðalatriðið er að orðinu fylgja hvorki gæsalappir né nokkur skýring þannig að auglýsandinn virðist telja að þetta sé eðlilegt orð í íslensku sem almennir málnotendur þekki. Ég dreg hvort tveggja í efa og finnst þetta í raun óboðlegt orðalag í auglýsingu. Þarna væri hægt að segja t.d. Bílastæði við Keflavíkurflugvöll með lagningu, eða Bílastæði við Keflavíkurflugvöll með þjónustu, eða Bílastæði við Keflavíkurflugvöll með lagningarþjónustu. Það orð hefur reyndar verið notað – á mbl.is 2023 segir: „BaseParking hefur í nokkur ár boðið upp á lagningarþjónustu við flugstöðina.“