Posted on

Söludrifinn eða söluhvatur?

Lýsingarorðið söludrifinn finnst ekki í neinum íslenskum orðabókum en hefur nokkuð verið notað a.m.k. undanfarinn aldarfjórðung. Elsta dæmi sem ég finn um það er í Morgunblaðinu árið 2000: „Við leitum að söludrifnum einstaklingi.“ Í Morgunblaðinu 2003 segir: „Við ætlum að innleiða „Kaupþingskúltúrinn“ í Svíþjóð og gera starfsfólkið þar með meira söludrifið en nú er raunin.“ Í Fréttablaðinu 2008 segir: „Til þess að komast í gegnum niðursveifluna þurfa flest fyrirtæki að vera mjög söludrifin.“ Í Morgunblaðinu 2011 segir: „Starfið oft einum of söludrifið.“ Í Morgunblaðinu 2012 segir: „Alþjóðleg samtök verslunarmiðstöðva, ICSC, hafa veitt Kringlunni silfurverðlaun í flokki „söludrifinna markaðsviðburða“.“

Orðið er sem sé notað um fólk, fyrirtæki, störf, viðburði og e.t.v. fleira. Það er augljóslega bein yfirfærsla á sales driven í ensku sem vísar til fyrirtækja, menningar eða stefnu þar sem megináherslan er lögð á að hámarka sölu og ná sölumarkmiðum til skamms tíma. Vitanlega eru báðir hlutar orðsins íslenskir en -drifinn er samt ekki sérlega heppilegt sem síðari liður í þessu tilviki vegna þess að það orð er, eða var a.m.k. til skamms tíma, einkum notað um vélar og tæki – afturdrifinn, framdrifinn, fjórhjóladrifinn, rafdrifinn, vökvadrifinn o.s.frv. Vissulega hafa þó nokkur önnur hliðstæð orð af svipuðu merkingarsviði og söludrifinn komið inn í málið úr ensku að undanförnu, svo sem markaðsdrifinn, útflutningsdrifinn, óhagnaðardrifinn o.fl.

Orðið söludrifinn er svo sem ekkert orðskrípi og sjálfsagt er það orðið kyrfilega fast í málinu. Það má samt alveg velta því fyrir sér hvort hægt væri að finna eitthvert annað orð sem félli betur að málhefð og fylgdi enskunni ekki jafn nákvæmlega. Mér finnst koma til greina að búa til orðið söluhvatur. Seinni liðurinn, hvatur, er skýrður 'röskur í hreyfingum' í Íslenskri nútímamálsorðabók og einnig 'fjörugur, vaskur' í Íslenskri orðabók. Sú merking gæti átt við þarna, og ekki síður upphafleg merking orðstofnsins sem er 'að stinga, ota, þrýsta' samkvæmt Íslenskri orðsifjabók. Þannig gæti söluhvatt fyrirtæki auglýst eftir söluhvötu starfsfólki til að vinna söluhvöt störf og sinna söluhvötum viðburðum í samræmi við söluhvata stefnu sína.

Þetta má líka tengja ýmsum orðum af sama merkingarsviði sem hafa hvata- sem fyrri lið, svo sem hvatakerfi, hvataferð, hvatagreiðsla, hvatapeningur o.fl. En lýsingarorðið söludrifinn hefur líka getið af sér nafnorðið söludrifni sem er stundum notað í atvinnuauglýsingum. „Mikil söludrifni ásamt vilja og elju til að ná árangri í starfi“ segir t.d. í Morgunblaðinu 2009. Í staðinn fyrir söludrifni mætti búa til orðið söluhveti, leitt af (sölu)hvatur á sama hátt og leti er leitt af latur. Það tæki auðvitað tíma að venjast orðunum söluhvatur og söluhveti og mér finnst svo sem ekki líklegt að þau komist í almenna notkun, en það er samt rétt að hafa í huga að það er ekki alltaf nauðsynlegt eða æskilegt að íslensk orð séu nákvæm endurómun enskra orða.