Posted on

Innan (ekki) langs tíma

Merking atviksorðanna bráðum og fljótlega er mjög svipuð, enda eru þau skýrð hvort með öðru í Íslenskri orðabók – og bráðum reyndar auk þess með orðunum 'innan skamms, brátt'. Í Íslenskri nútímamálsorðabók er bráðum hins vegar skýrt 'innan skamms tíma' en fljótlega er skýrt 'innan langs tíma'. Lýsingarorðin langur og skammur eru andheiti þannig að búast mætti við því að samböndin 'innan skamms tíma' og 'innan langs tíma' væru andstæðrar merkingar, og sama ætti þá að gilda um orðin sem verið er að skýra, bráðum og fljótlega – sem rímar auðvitað ekki við að þau eru skýrð hvort með öðru í Íslenskri orðabók. En svo undarlegt sem það kann að virðast merkir 'innan skamms tíma' og 'innan langs tíma' það sama.

Þegar forsetningin innan er notuð um tíma merkir hún 'innan við tiltekin tímamörk' – innan X  merkir 'áður en X er liðið'. Þannig merkir innan árs 'áður en ár er liðið', innan klukkutíma merkir 'áður en klukkutími er liðinn', o.s.frv. Það er því í fullu samræmi við þetta að innan skamms tíma merki 'áður en skammur tími er liðinn' því að það hlýtur að vera 'bráðum, fljótlega'. En hvað með innan langs tíma? Þótt innan X merkti þar líka 'áður en X er liðið' eins og í öðrum tilvikum er alls ekkert sjálfgefið að t.d. ég kem innan langs tíma þýði 'ég kem fljótlega' heldur ætti það að þýða 'einhvern tíma áður en þessi langi tími er liðinn' – en lengd hans er óskilgreind, og þetta gæti verið undir lok hans sem þarf ekkert að vera 'fljótlega'.

En ekki nóg með þetta – það er líka hægt að hafa neitun í sambandinu og segja innan ekki (eigi) langs tíma. Á tímarit.is eru rúm fimm hundruð dæmi um sambandið með neitun en tæp þrjú hundruð án neitunar. Í Vísi 1946 segir: „Búist er við að flugferðir þessar geti hafizt innan langs tíma.“ Í Tímanum 1937 segir: „Það virðist því langt frá því óskynsamlegt, að láta sig dreyma um sjónvarpsstöð í Reykjavík innan ekki langs tíma.“ Ekki verður betur séð en merkingin sé sú sama hvort sem neitunin er með eða ekki. Það er vitanlega óvænt – við myndum búast við því að neitunin sneri merkingunni við. En hér er það sambandið með neitun sem hefur þá merkingu sem við væri að búast – 'áður en ekki langur (þ.e. skammur) tími er liðinn'.

Eftir sem áður er sérkennilegt að sambandið innan langs tíma skuli hafa þá merkingu sem það hefur. Það er yngra en hitt ef marka má tímarit.is, þótt ekki muni miklu – elsta dæmið með neitun er frá 1871 en það elsta án neitunar frá 1892. Það er auðvitað ljóst að forsetningin innan er takmarkandi og hugsanlega er tilfinning málnotenda að innan sé þarna eins konar ígildi neitunar þannig að innan langs tíma merkti 'ekki eftir langan tíma'. Hvað sem þessu líður er sambandið án neitunar greinilega á undanhaldi – í Risamálheildinni eru aðeins um fjörutíu dæmi um innan langs tíma en á fjórða hundrað um innan ekki langs tíma. Hugsanlega er það vísbending um að málnotendum finnist innan langs tíma ekki rökrétt og bæti því neituninni inn.