Posted on

Að taka þátt

Orðasambandið taka þátt í einhverju er gífurlega algengt – meira en hálf milljón dæma er um það á tímarit.is, þau elstu frá því um 1830. Notkun þess hefur smátt og smátt farið vaxandi – í Risamálheildinni eru dæmin tæp fjögur hundruð þúsund. Uppruni sambandsins er óviss eins og fram kemur hjá Jóni G. Friðjónssyni í Merg málsins: „Líkingin kann að vísa til þess er reipi eru fléttuð. Annar kostur er að líta svo á sem þáttur hafi hér yfirfærðu merkinguna 'hlutdeild'.“ En oft eru gerðar athugasemdir við að „sleppt sé aftan af“ sambandinu – í Málfarsbankanum segir: „Best fer á því að segja taka þátt í einhverju, síður einungis „taka þátt“.“ Fjölmargar athugasemdir í sama dúr má finna í „Málvöndunarþættinum“ og fleiri málfarshópum.

Því fer fjarri að þetta sé nýtt. Elsta dæmi sem ég finn um það er í Vísi 1911: „Á eftir verða frjálsar umræður. Formælendur nýu guðfræðinnar sjerstaklega beðnir um að taka þátt.“ Í Sameiningunni 1923 segir: „Þing það á að halda í Eisenach á Þýzkalandi 19.–26. ágúst. 16 þjóðir taka þátt.“ Í Norðurljósinu 1925 segir: „Jeg þekti ekkert til hennar áður, en hún bauðst til að hjálpa mjer að koma upp Radiostöð á Akureyri, ef aðrir vildu líka taka þátt.“ Í Heimskringlu 1930 segir: „Undanfarið hefir staðið skákþing mikið í Hamborg á Þýzkalandi, þar sem Íslendingar tóku þátt.“ Lengi framan af eru dæmin þó sárafá og fara líklega ekki að verða áberandi fyrr en á níunda áratugnum, en þá fóru þau að rata inn í málfarsþætti.

Gísli Jónsson fjallaði nokkrum sinnum um þetta í þáttum sínum um „Íslenskt mál“ í Morgunblaðinu og taldi í þætti 1988 „hvimleitt mál og endasleppt eða halaklippt, ef ekki er um það getið, í hverju menn eiga að taka þátt. Hvernig væri að segja: Vertu með í stað hins: „Taktu þátt“? Eða þá: Hvað voru margir með í staðinn fyrir: „Hvað tóku margir þátt“?“ Í þætti 1990 sagði hann: „Svo og svo margir menn „tóku þátt“ á einhverju móti, var sagt ekki fyrir löngu. Einfalt hefði verið að segja hversu margir tóku þátt í mótinu. Þáttur er nefnilega í einhverju.“ Í þætti 1992 fann hann að „hinu halaklippta orðasambandi að „taka þátt““ og sagði: „Mælt er með því að segja: „Vertu með“ í þess stað, enda heyrist það góðu heilli stundum í auglýsingum.“

En það er villandi og raunar beinlínis rangt að segja „ekki […] um það getið, í hverju menn eiga að taka þátt“. Í dæmunum hér að framan kemur það augljóslega alltaf fram – vissulega ekki í sömu setningu, heldur í undanfarandi texta. Það er nefnilega ekki og hefur aldrei verið hægt að nota taka þátt nema augljóst sé af samhengi – eða í einstöku tilvikum ytri aðstæðum – í hverju er verið að taka þátt. Mér er fyrirmunað að sjá að það geti á einhvern hátt verið betri eða skýrari íslenska að endurtaka upplýsingar sem þegar eru komnar fram – segja t.d. Formælendur nýju guðfræðinnar sérstaklega beðnir um að taka þátt í þeim eða 16 þjóðir taka þátt í því o.s.frv. Slík endurtekning er með öllu óþörf og oft raunar fremur til lýta að mínu mati.

Það er ljóst að margir málnotendur eru sama sinnis – í Risamálheildinni eru um sextíu þúsund dæmi um taka þátt án þess að í komi á eftir, bæði úr formlegum og óformlegum textum. Það er líka mjög sérkennilegt að hafna taka þátt án í á þeim forsendum að það sé „halaklippt“ og mæla þess í stað með vera með. Það samband er nefnilega ekkert síður „halaklippt“ en taka þátt – það er ekki hægt að vera með án samhengis, heldur verður að vera með í einhverju. En rétt eins og með taka þátt þarf ekki að nefna þetta „eitthvað“ í sömu setningu, heldur getur það komið fram í undanfarandi texta eða ytri aðstæðum. Það er alveg jafn rétt og eðlileg íslenska að segja t.d. Keppninni er lokið og þúsundir tóku þátt og Keppninni er lokið og þúsundir voru með.