Posted on

Ærna nauðsynlegt að verja ærna peningum

Á Facebook sá ég nýlega vitnað í ummæli Jóns Sigurðssonar um bókasöfn í Nýjum félagsritum 1844, í tilefni af tillögu um endurskoðun á bókasafnsmálum í Reykjavík: „Engin þjóð er nú til í veröldinni, sem siðuð vill heita, að hún leggi ekki stund á að eiga góð bókasöfn, og enar bezt mentuðu þjóðir verja ærna peníngum úr almennum sjóði til að auka og prýða söfn þessi sem mest, og kaupa til þeirra það sem ekki fæst með öðru móti.“ Það sem vakti forvitni mína var orðalagið verja ærna peningum. Lýsingarorðið ærinn er auðvitað vel þekkt, og skýrt 'nógur, fullmikill, mikill' í Íslenskri nútímamálsorðabók, en sögnin verja stýrir þágufalli þannig að þarna mætti búast við verja ærnum peningum – en hvað er þá myndin ærna að gera þarna?

Við uppflettingu í orðabókum kom strax í ljós hvað þarna er á seyði – í Íslenskri orðsifjabók segir: „Af ærinn er leitt ærna l.ób.“ Í Íslensk-danskri orðabók frá 1920-1924 er lýsingarorðið ærna líka uppflettiorð í merkingunni 'mere end nok, særdeles, overmaade', og sömuleiðis í Íslenskri orðabók þar sem það er skýrt 'of mikill, yfrinn, kappnógur'. Þótt orðalag skýringa sé örlítið mismunandi verður ekki betur séð en orðið hafi venjulega verið notað í alveg sömu merkingu og ærinn. En ekki nóg með það – í Íslenskri orðabók og Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er ærna líka gefið sem atviksorð í merkingunni 'afar, feikilega' eins og í Skírni 1867: „Borgirnar (einkum Parísarborg) verða að taka ærna mikil peningalán til þess kostnaðar.“

En hvernig stendur á því að ærna verður til sem „frosin“ mynd af ærinn? Vitanlega kemur þessi mynd víða fyrir í beygingu síðarnefna orðsins – í sterku beygingunni í þolfalli eintölu í kvenkyni (ærna ástæðu), þolfalli fleirtölu í karlkyni (ærna peninga), og í ýmsum myndum eintölu í veikri beygingu. Hugsanlegt er að þessar myndir hafi verið tiltölulega algengar. Eftir að framburður sambandsins rn verður rdn á fjórtándu öld og upp úr því er hljóðfræðilegur munur á ærna og ærinn orðinn meiri en áður og langsóttara fyrir málnotendur að tengja þetta saman. Það hefur hugsanlega orðið til þess að málnotendur fóru að skynja ærna sem sérstakt óbeygjanlegt lýsingarorð, enda fjöldi óbeygjanlegra lýsingarorða sem enda á -a til í málinu.

Sem óbeygjanlegt lýsingarorð er ærna komið til ekki seinna en á sautjándu öld – í Eyrarannál segir: „Lét og selja um allt Ísland á þessum vetri þá indversku uppreknu vöru fyrir ærna gjald.“ Atviksorðið ærna er álíka gamalt – „ærna kátir ýtar voru“ segir í Víkingarímum frá fyrri hluta sautjándu aldar. Bæði lýsingarorðið og atviksorðið eru algeng á nítjándu öld og framan af þeirri tuttugustu en dæmum fækkar smátt og smátt og þau virðast nær alveg horfin úr málinu um miðja öldina. Án þess að geta fullyrt nokkuð um það finnst mér hugsanlegt að rekja megi hvarf þeirra til málvöndunar að einhverju leyti – það hafi þótt betra og vandaðra mál að nota beygt lýsingarorð en óbeygt og atviksorðið hafi svo fylgt lýsingarorðinu. En þetta eru bara getgátur.